Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 19.12.2019

Erla samskiptastjóri VÍS

Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri hjá VÍS. Hún mun miðla upplýsingum um félagið til fjölmiðla og markaðsaðila og bera ábyrgð á framfylgd samfélagsstefnu félagsins.

Erla hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hún var meðal annars starfandi framkvæmdastjóri hjá Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, viðskiptastjóri hjá Brandenburg auglýsingastofu, verkefnastjóri á samskipta- og markaðssviði hjá Straumi fjárfestingarbanka og starfaði lengi hjá RÚV, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Nú síðast starfaði hún hjá Stekk, fjárfestingarfélagi.

Erla stundar nú MBA nám við Háskólann í Reykjavík (HR) og lýkur prófi næsta vor. Hún er jafnframt með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá HR og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). Erla er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.