Hoppa yfir valmynd

Eignast barn

Innilegar hamingjuóskir með barnið.underlineÞegar fjölskyldan stækkar og ábyrgðin eykst er mikilvægt að vera rétt tryggður því við eigum það öll sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki.

Við mælum með því að þú skoðir kaup á nokkrum tryggingum sem tryggja fjárhagslegt öryggi fjölskyldu þinnar ef hið óvænta gerist.

Við mælum með að þú skoðir þessar tryggingar!

Líf- og sjúkdómatryggingar
F plús fjölskyldu- og innbústrygging
Barnatrygging

Getum við aðstoðað?

Við óskum þér og þinni fjölskyldu velfarnaðar og minnum ykkur á að huga ávallt að forvörnum til þess að reyna að koma í veg fyrir tjón.

Við bendum á síðuna algengar spurningar en hafðu endilega samband við okkur ef eitthvað er óljóst og við aðstoðum þig með ánægju.

Algengar spurningarHafa samband
Getum við aðstoðað?

Fleiri lífsviðburðir

Kaupa bíl

Þegar þú kaupir þér bíl þarft þú samkvæmt lögum að tryggja hann með ábyrgðartryggingu. Þú getur svo valið hvort þú viljir kaupa bílrúðutryggingu og kaskótryggingu.

Selja bíl

Það þarf að tilkynna eigendaskipti skráningarskyldra ökutækja til Samgöngustofu. Eftir að eigendaskiptin hafa verið tilkynnt eru þær upplýsingar sendar til okkar.

Kaupa fast­eign

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að passa upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar ef þú lendir í því að það verður tjón á fasteigninni.

Eignast dýr

Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns. Við bjóðum einungis upp á dýratryggingar ef þú ert með aðrar tryggingar hjá okkur.

Flytja erlendis og aftur heim

Við flutninga erlendis þarf að huga að ýmsu, meðal annars tryggingum. Þú getur sagt sumum tryggingum upp áður en þú ferð en skynsamlegt er að skoða kaup á tryggingum eins og flutningstryggingum og sjúkrakostnaðartryggingu.

Veikjast eða slasast

Þegar nýr veruleiki vegna veikinda eða slyss blasir við okkur, förum við að skoða hvaða tryggingavernd við höfum og hvaða málum þarf að sinna. Þetta getur verið allt frá því að fá vottorð hjá lækni eða einfaldlega að stíga fyrsta skrefið og tilkynna málið til okkar.

Fara á eftir­laun

Á eftirlaunaaldri eru börnin flogin úr hreiðrinu og margir kjósa að flytja í minna húsnæði. Þetta er því góður tími til þess að yfirfara tryggingaverndina og skoða sérstaklega hvort verðmæti innbús er rétt metið og hvort tilefni sé til að fara í minni F plús fjölskyldu- og innbústryggingu.