Hoppa yfir valmynd

Viðbót­ar­bruna­trygging sumar­bú­staða

Ef þú telur að brunabótamatunderlinesumarbústaðarins þíns endurspegli ekki kostnað við endurbyggingu hans, ef til tjóns kemur, er gott að bæta viðbótarbrunatryggingu við sumarbústaðartrygginguna.

Viðbótarbrunatryggingin tryggir þann mismun sem kann að vera á milli brunabótamatsins og endurbyggingarkostnaðar bústaðarins. Æskilegt er að tryggingarfjárhæðin dugi til að koma bústaðnum að fullu í fyrra horf eftir brunatjón.

Tryggingin bætir

  • Brunatjón.
  • Skyndilegt sótfall.
  • Fall loftfara á fasteign.
  • Slökkvi- og björgunaraðgerðir til að forðast eða takmarka tjón.

Tryggingin bætir ekki

  • Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Skemmdir vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman. Til dæmis vegna sóts frá reykháfi eða kertum.
  • Óbeint tjón vegna bruna eins og rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
  • Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum sumarbústaðartryggingar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar