Viðbótarábyrgðartrygging bílaleigutryggingar
Hámarksbætur eru 1.000.000 USD og eigin áhætta er engin
Tryggingin bætir
- Tjón sem ökumaður veldur öðrum. Grunn ábyrgðartrygging þarf að vera til staðar á ökutækinu (Mandatory Liability Insurance) en hana kaupir þú hjá bílaleigunni.
- Tjón þar sem upphæð tjónsins fer yfir hámarksbætur grunn ábyrgðartryggingar t.d. grunn ábyrgðartrygging er 1.000.000 kr. en tjón er 1.500.000 kr.. Grunn ábyrgð bætir 1.000.000 kr. en viðbótar ábyrgðartrygging 500.000 kr.
Tryggingin bætir ekki
- Ábyrgðartjón ef grunn ábyrgðartrygging frá bílaleigunni er ekki til staðar.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.