
Forvarnaráðstefna VÍS 2018
Öryggismál - erum við að ná árangri?
Hilton Reykjavík Nordica 7. febrúar kl. 13-16
Forvarnaráðstefna VÍS 2018
Síminn hlaut forvarnaverðlaun VÍS 2018
Síminn hlaut í dag forvarnarverðlaun VÍS sem veitt voru við hátíðlega athöfn á forvarnaráðstefnu VÍS sem haldin var á Hilton Nordica hótelinu. Þetta er í níunda sinn sem VÍS verðlaunar fyrirtæki fyrir góða frammistöðu í baráttunni gegn vinnuslysum.
Að mati dómnefndar er Síminn fyrirmyndarfyrirtæki í forvörnum og öryggismálum. Sem dæmi um það starfar Síminn samkvæmt vottuðu öryggisstjórnunarkerfi. Til að viðhalda öflugri öryggisvitund og öryggismenningu heldur fyrirtækið meðal annars reglubundnar vitundarvakningarkynningar fyrir alla starfsmenn.

Endurvinnslan fékk viðurkenningu fyrir árangur í öryggismálum
Endurvinnslan er endurvinnslufyrirtæki á drykkjarvöruumbúðum sem leitast við að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni með því að starfa eftir ISO 14001 umhverfisstaðlinum.
Öryggismál starfsmanna eru samtvinnuð við gæða- og umhverfismál sem eðlilegur hlut af daglegri starfsemi fyrirtækisins.

Reykjalundur fékk viðurkenningu fyrir árangur í öryggismálum
Reykjalundur er heilbrigðisstofnun sem sérhæfir sig í alhliða endurhæfingu en um 1100 skjólstæðingar fá þar meðferð á ári.
Á vinnustaðnum er öryggi sjúklinga og starfsmanna í fyrirrúmi.
Reykjalundur leggur mikla áherslu á að starfsánægja og starfsumhverfi sé eins og best verður á kosið.

Dagskrá
Fundarstjóri

Þóra Birna Ásgeirsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðs- og umbóta hjá Elkem Ísland



