Hoppa yfir valmynd

Víðtæk eigna­trygging

Víðtæk eignatrygging er fyrir dýrmætustuunderlinehlutina þína sem þú vilt tryggja eins vel og hægt er.

Nánari upplýs­ingar um víðtæka eigna­trygg­ingu

Víðtæk eigna­trygg­ing er gjarn­an tek­in fyrir ein­staka dýra muni en hún trygg­ir þá fyr­ir tjón­um sem verða vegna skyndi­legra, óvæntra og ut­anaðkom­andi at­b­urða. Trygg­ing­in gild­ir hvar sem er í heim­in­um á meðan mun­irn­ir eru í um­sjá þinni.

Dæmi um hluti sem tryggja má með víðtækri eigna­trygg­ingu eru:

  • Myndavélar
  • Hljóðfæri
  • Tölvur
  • Listaverk

Víðtæk eigna­trygg­ing hent­ar þér vel ef þú ert:

  • ekki með fjölskyldutryggingu.
  • með fjölskyldutryggingu sem inniheldur ekki innbúskaskó.
  • með fjölskyldutryggingu sem inniheldur innbúskaskó en verðmæti muna fer yfir hámarks bótafjárhæð úr innbúskaskó.
Nánari upplýsingar um víðtæka eignatryggingu

Tryggingin bætir

  • Tjón á innbúi af völdum skyndilegra, ófyrirsjáanlegra og utanaðkomandi atvika.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón vegna skyndilegra hita- eða rakabreytinga.
  • Tjón sem rekja má til galla, rangrar samsetningar eða innri bilana.
  • Tjón vegna eðlilegs slits og útlitsgalla sem hefur ekki áhrif á notkun hlutarins.
  • Tjón sem stafar beint eða óbeint af áhrifum tímaskráningar á starfsemi hugbúnaðar og/eða kerfa.
  • Þann hluta tjónsins sem fellur undir eigin áhættu.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með víðtæka eigna­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með víðtæka eignatryggingu?
Forvarnir
Heimilið

Innbrot

Margt er hægt að gera til að fyr­ir­byggja inn­brot. Oft á tíðum er and­lega van­líðan og óör­yggið sem fylg­ir því að brot­ist er inn á heim­ilið mun verra en tjónið og mun­ir sem hverfa í inn­brot­inu.  Því er mik­il­vægt að hver og einn sé meðvitaður um þær for­varn­ir sem hann get­ur sinnt til að koma í veg fyr­ir inn­brot hjá sér. Reynsl­an hef­ur sýnt að inn­brot eru oft vel skipu­lögð. Þjóf­ar eru oft­ast að leita eft­ir hlut­um sem auðvelt er að koma í verð eins og mynda­vél­um, far­tölv­um, sím­um, spjald­tölv­um, flat­skjá­um, pen­ing­um og skart­grip­um.
Lesa meira

Ef þú ert með fjölskyldu- og innbústryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText