Við vitum að allt getur gerst!
Við erum því reiðubúin að aðstoða og leiðbeina þegar þú þarft á okkur að halda.
Hvort sem þú þarft að afla þér upplýsinga um viðbrögð við tjóni, tilkynna tjón, finna löggilt verkstæði eða koma við á næstu þjónustuskrifstofu VÍS. Þá erum við til staðar fyrir þig!
Almennt tjón
Auðvelt er að tilkynna tjón á netinu með því að smella á Tilkynna tjón og fylgja skrefunum.
Ef þú getur ekki tilkynnt tjónið á netinu getur þú fyllt út tjónstilkynningu á PDF formi
Neyðartilvik
Tjón
Ef alvarlegt tjón verður, til dæmis vegna bruna eða vatns, skaltu hafa samband við neyðarþjónustu VÍS í síma 560 5000. Þar er starfsmaður á vakt allan sólarhringinn.
Umferðaróhapp
Þú getur haft samband við Arekstur.is ef þú þarft aðstoð við að fylla út tjónstilkynningu. Þessi þjónusta er veitt á höfuðborgarsvæðinu milli 7:45 og 18:30 á virkum dögum og milli 12:00 og 17:00 á laugardögum. Síminn er 578 9090.
Slys á fólki / lögbrot
Ef um slys á fólki í umferðaróhöppum er að ræða eða tjón vegna lögbrots t.d. innbrot eða skemmdarverk, skaltu samstundis kalla til lögreglu í síma 112.
Slys og veikindi erlendis
Ef alvarlegt slys eða veikindi verða erlendis skaltu hafa samband við SOS International neyðarþjónustuna í síma +45 7010 5050. Þar er vakt allan sólarhringinn.
Slys á fólki/glæpir?
Hringdu í 112
Neyðarnúmer VÍS
560 5070
SOS International
+45 7010 5050
Tjónaþjónustan
Í tjónaþjónustunni hafa viðskiptavinir greiðan aðgang að upplýsingum um fyrstu viðbrögð eftir að tjón verður. Þegar öllum gögnum hefur verið skilað inn er tjónið afgreitt eins fljótt og auðið er.
check
Viðbrögð við ökutækjatjóni
Lentir þú í ökutækjatjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur ökutækjatjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við tjóninu til bótaréttar.
Skoða
check
Viðbrögð við bílrúðutjóni
Lentir þú í bílrúðutjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur bílrúðutjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við tjóninu til bótaréttar.
Skoða
check
Viðbrögð við húseignatjóni
Lentir þú í húseignatjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur húseignatjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við tjóninu til bótaréttar.
Skoða
check
Viðbrögð við innbústjóni
Lentir þú í innbústjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur innbústjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við tjóninu til bótaréttar.
Skoða
check
Viðbrögð við ferðatjóni
Lentir þú í ferðatjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur ferðatjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við tjóninu til bótaréttar.
Skoða
check
Viðbrögð við líf- og heilsutjóni
Lentir þú í líf- og heilsutjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur líf- og heilsutjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við atvikinu til bótaréttar.
Skoða
check
Viðbrögð við dýratjóni
Lentir þú í dýratjóni? Hér finnur þú upplýsingar um allt sem viðkemur dýratjóni, allt frá fyrstu viðbrögðum við atvikinu til bótaréttar.
Skoða
check
Þjónustuaðilar
Hér er að finna upplýsingar um verkstæði og bílaleigur sem þjóna viðskiptavinum VÍS samkvæmt samkomulagi. Nauðsynlegt er að hafa samband við VÍS áður en leitað er til annarra en þeirra sem er að finna hér.
Skoða