Nánari upplýsingar um sjúkrakostnaðartryggingu hesta
- Kauptímabil: Þú getur keypt trygginguna þar til hesturinn er 15 vetra gamall.
- Tryggingarfjárhæð: Tryggingarfjárhæð sjúkrakostnaðartryggingar hesta er föst fjárhæð sem kemur fram á tilboði, tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun. Tryggingarfjárhæðin helst óskert þar til hesturinn verður 19 vetra gamall en þá lækkar hún um 20% árlega.
- Gildistími: Þegar hesturinn verður 23 vetra gamall fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.
- Eigin áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem þú færð greitt úr sjúkrakostnaðartryggingu hesta. Eigin áhætta þín er föst fjárhæð auk 10% af lækniskostnaði. Þú þarft ekki að greiða föstu fjárhæðina aftur vegna sjúkrakostnaðar, óháð fjölda heimsókna til dýralæknis, fyrr en að 100 dögum liðnum frá fyrstu heimsókn. Upplýsingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun.
Nauðsynlegt er að útfyllt umsókn fylgi með og ef hesturinn er 5 vetra eða eldri þarf vottorð frá dýralækni um almennt heilsufar hestsins að fylgja með. Vottorðið verður að vera innan við 30 daga gamalt. Dýralæknir verður að skrifa vottorðið á eyðublað frá VÍS. Þú getur sent okkur vottorðið rafrænt og látið það fylgja með tilboðsbeiðni eða sent það á vis@vis.is.
Tryggingin bætir
- Kostnað læknis vegna skoðunar og meðferðar vegna sjúkdóms eða slyss.
- Kostnað vegna bæklunaraðgerða vegna fæðingargalla folalds til 1 og 1/2 árs aldurs vegna ákveðinna sjúkdóma.
- Kostnað vegna folalds, frá kasti í allt að 30 daga, ef hryssa er líftryggð.
Tryggingin bætir ekki
- Kostnað vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
- Kostnað vegna sjúkdóma sem hestur fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar.
- Kostnað vegna segulómskoðunar og sneiðmyndatöku.
- Kostnað vegna fyrirbyggjandi aðgerða og reglulegra skoðana.
- Kostnað vegna geldingar eða skurðaðgerðar vegna launeista.
- Kostnað vegna meðferðar til að fylja hryssu.
- Kostnað vegna sjúkdóma í tannholdi, tannhirðu, tannviðgerða eða galla í tönnum.
- Kostnað vegna geðslagsvandamála.
- Kostnað vegna álags á lækniskostnað ef kalla þarf til dýralækni utan dagvinnutíma nema brýna nauðsyn beri til.
Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.
Skilmálar og aðrar upplýsingar
Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að kynna sér skilmálana vel og átta sig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin. Við bendum á að ítarlegri upplýsingar um trygginguna er að finna hér fyrir neðan.
Aðrar upplýsingar
Skilmálar
