Hoppa yfir valmynd

Líftrygging hunda

Líftrygging hunda er góð trygg­ingunderlinefyrir alla hundaeigendur. Ef hundurinn þinn er líftryggður færðu greiddar bætur ef hundur deyr af völdum slyss eða sjúkdóms, ef aflífun er ráðlögð af dýralækni eða ef hundurinn hverfur og finnst ekki, þrátt fyrir leit.
  • Kauptímabil: Þegar hundur er á aldrinum 8 vikna til 5 ára.
  • Fjárhæð: Þú ræður hver líftryggingarfjárhæðin er. Gott er að hafa í huga að bætur geta aldrei orðið hærri en markaðsvirði hundsins á tjónsdegi. Ef þú vilt líftryggja hundinn þinn fyrir hærri fjárhæð en 350.000 kr. verður hundurinn að vera ættbókarfærður hjá HRFÍ eða SFÍ. Fjárhæðin helst óskert þar til hundurinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.
  • Gildistími: Þegar hundurinn verður 10 ára fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki.

Tryggingin bætir

  • Ef hundur deyr af völdum sjúkdóms eða slyss.
  • Ef aflífun er ráðlögð af dýralækni.
  • Ef hundur hverfur og finnst ekki aftur innan þriggja mánaða, þrátt fyrir leit.

Tryggingin bætir ekki

  • Dauða eða aflífun vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Dauða eða aflífun vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests eða skapgerðargalla.
  • Dauða eða aflífun vegna smitandi lifrarbólgu.
  • Aflífun vegna fyrirmæla opinberra yfirvalda.
  • Dauða vegna slyss sem varð vegna þess að hundur var bundinn við ökutæki, laus í ökutæki eða yfirgefinn í ökutæki.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Sjúkrakostnaðartrygging hunda

Sjúkra­kostnaðartrygg­ing hunda er góð trygg­ing fyr­ir alla hunda­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna lækn­is­kostnaðar í kjöl­far sjúk­dóms eða slyss.

Lesa meira

Afnotamissistrygging hunda

Afnotamissistrygging hunda er góð trygging fyrir alla sem eiga sérþjálfaðan hund eða hund sem notaður er í kynbótaræktun. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur ef hundurinn tapar eiginleikum sínum til kynbótaræktunar eða sérþjálfaðs hlutverks.

Lesa meira

Umönnunartrygging hunda

Umönnunartrygging hunda er góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur vegna vistunar og gæslu hunds á dýrahóteli ef þú slasast eða veikist svo alvarlega að þú eða fjölskylda þín getið ekki veitt hundinum þá umönnun sem hann þarfnast.

Lesa meira

Ábyrgðartrygging hunda

Ábyrgðartrygging hunda er góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Tryggingin bætir kostnað sem getur fallið á þig samkvæmt skaðabótalögum ef hundur í þinni eigu veldur þriðja aðila líkams- eða munatjóni.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með líftrygg­ingu hunda?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með líftryggingu hunda?
Forvarnir
Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.
Lesa meira

Ef þú ert með dýratryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText