Hoppa yfir valmynd

Ábyrgð­ar­trygging hesta

Ábyrgðartrygg­ing hestaunderlineer góð trygg­ing fyr­ir alla hesta­eig­end­ur. Trygg­ing­in bæt­ir kostnað sem get­ur fallið á þig sam­kvæmt skaðabóta­lög­um ef hest­ur í þinni eigu veld­ur þriðja aðila lík­ams- eða muna­tjóni.
  • Kaup­tíma­bil: Frá fæðingu hests og út lífaldur hans.
  • Trygg­ing­ar­fjár­hæð: Tryggingarfjárhæð ábyrgðartryggingar hesta er föst fjárhæð. Tryggingarfjárhæðin kemur fram á tilboði, skírteini og endurnýjunarkvittun.
  • Gild­is­tími: Tryggingin gildir þar til henni er sagt upp.
  • Eig­in áhætta: Þú berð eigin áhættu af hverju tjóni sem þú færð greitt úr ábyrgðartryggingu hesta. Upplýsingar um eigin áhættu þína koma fram á tilboði, tryggingarskírteini og endurnýjunarkvittun.

Tryggingin bætir

  • Tjón sem fellur á þig sem eiganda hestsins samkvæmt skaðabótalögum.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón sem verður í kjölfar ákveðins verkefnis sem hestur á að sinna. Oft kallað „tjón innan samninga“.
  • Tjón sem fjölskylda þín með sama lögheimili verður fyrir eða umsjónaraðili hestsins.
  • Tjón á hlutum sem þú ert með í láni.
  • Tjón sem rekja má til þess að ekki hefur verið farið eftir lögum um dýrahald.
  • Tjón sem rekja má til þess að hestinum verði á mistök sé hesturinn notaður í atvinnustarfsemi.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Sjúkrakostnaðartrygging hesta

Sjúkra­kostnaðartrygg­ing hesta er góð trygg­ing fyr­ir alla hesta­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna lækn­is­kostnaðar í kjöl­far sjúk­dóms eða slyss.

Lesa meira

Takmörkuð líftrygging hesta

Tak­mörkuð líf­trygg­ing hesta er góð trygg­ing fyr­ir alla sem eiga tóm­stunda­hest. Ef þú ert með þessa trygg­ingu hesta færðu greidd­ar bæt­ur ef hest­ur deyr af völd­um slyss eða sjúk­dóms, ef taf­ar­laus af­líf­un er ráðlögð af dýra­lækni eða ef hest­ur hverf­ur og finnst ekki aft­ur inn­an 4 mánaða þrátt fyr­ir leit..

Lesa meira

Reiðhestatrygging

Reiðhesta­trygg­ing er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur keppn­is­hesta. Í trygg­ing­unni er tak­mörkuð líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna reiðar.

Lesa meira

Kynbótahryssutrygging

Kyn­bóta­hryssu­trygg­ing er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur kyn­bóta­hryssa. Í trygg­ing­unni er tak­mörkuð líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna kyn­bóta­rækt­un­ar. Í henni er einnig fyl og fol­alda­trygg­ing sem gild­ir þangað til fol­ald er 30 daga gam­alt.

Lesa meira

Góðhestatrygging

Góðhesta­trygg­ing er víðtæk­asta hesta­vernd­in okk­ar og góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur keppn­is­hesta. Í trygg­ing­unni er líf­trygg­ing og af­notamiss­is­trygg­ing vegna reiðar.

Lesa meira

Ófrjósemistrygging fyrir stóðhesta

Ófrjó­sem­is­trygg­ing er góð trygg­ing fyr­ir eig­end­ur stóðhesta. Trygg­ing­in er af­notamiss­is­trygg­ing vegna rækt­un­ar. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna var­an­legr­ar ófrjó­semi stóðhests af völd­um slyss eða sjúk­dóms.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með ábyrgð­ar­trygg­ingu hesta?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með ábyrgðartryggingu hesta?
Forvarnir
Frítími

Hestamennska

Áætlað er að 30.000 ein­stak­ling­ar stundi hesta­mennsku á einn eða ann­an hátt á land­inu. Skráðir fé­lag­ar hjá Land­ssam­bandi hesta­manna­fé­laga eru um 12.500 í 39 fé­lög­um og ætlaður fjöldi hesta á land­inu er um 92.000. Í bæk­lingi VÍS, Öryggi í hesta­mennsku, er að finna fróðlegt efni sem snýr að ör­ugg­um út­reiðum fyr­ir knapa, öku­menn og aðra.  
Lesa meira

Ef þú ert með dýratryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText