Hoppa yfir valmynd

Breyt­inga- og hjálp­ar­tækja­kostn­aður í kjölfar slyss

Ef þú lendir í slysi sem leiðirunderlinetil varanlegrar örorku þarf hugsanlega að aðlaga lögheimili þitt að breyttum aðstæðum þínum. Einnig er hugsanlegt að það þurfi að koma fyrir nauðsynlegum hjálpartækjum. 

Tryggingin greiðir kostnað vegna nauðsynlegra breytinga á lögheimili og nauðsynlegra hjálpartækja vegna slyss sem veldur læknisfræðilegri örorku samkvæmt frítímaslysatryggingu F plús.

Við greiðslu bóta skal skila inn frumritum kvittana. Á kvittun þarf að koma fram hvaða framkvæmdir voru gerðar á húsnæði og hvers konar hjálpartæki voru keypt.

Breytinga- og hjálpartækjakostnaður í kjölfar slyss er vernd sem er innifalin í F plús 2, 3 og 4 tryggingunum okkar. Þó er munur á bótafjárhæðum eftir því um hvaða F plús tryggingu er að ræða. Sjá samanburð á F plús tryggingum.

Tryggingin bætir

  • Kostnað vegna nauðsynlegra breytinga á húsnæði tryggingartaka og/eða vegna nauðsynlegra hjálpartækja í kjölfar bótaskylds slyss.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum F plús 2-4.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar