Hoppa yfir valmynd

Húsvagna­trygging

Húsvagnatrygging er víðtæk kaskótryggingunderlinesem bætir tjón á hjólhýsum, fellihýsum og tjaldvögnum ásamt því að tryggja þá lausamuni sem eru að staðaldri í húsvagninum.

Þú getur því slakað á og notið ferðalagsins.

Nánari upplýs­ingar um húsvagna­trygg­ingu

Víðtækari húsvagnatrygging en áður hefur sést

  • Tryggingin bætir öll skyndileg, utanaðkomandi atvik nema annað sé sérstaklega tekið fram. Tryggingin bætir foktjón, þótt vindstyrkur nái ekki 24,5m/sek. og tjón af völdum allra dýra nema gælu- og meindýra. Tryggingin bætir m.a. tjón vegna vatns úr vatnsleiðslum eða frárennslislögnum í geymsluhúsnæði og þjófnað á ferðalagi erlendis.
  • Þú þarft bara að passa að skoða veðurspá og aka ekki með húsvagn í miklum vindi.
  • Húsvagnatrygging gildir á Íslandi og á ferðalagi innan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss í allt að 92 daga frá brottfarardegi. Standi ferðalag lengur en í 92 daga er hægt að framlengja gildistímann gegn greiðslu. Tryggingin gildir hvort sem húsvagninn er í umferðinni eða í geymslu.
  • Ef þú lendir í því að valda öðrum tjóni á meðan þú dregur húsvagn er það tjón bætt úr lögboðinni ábyrgðartryggingu ökutækisins.
  • Foktjón eru undanskilin á tímabilinu 1. október til 30. apríl, nema húsvagn sé geymdur innandyra. Hægt er að kaupa óveðurstryggingu fyrir húsvagninn ef hann geymdur utandyra á þessu tímabili.
Nánari upplýsingar um húsvagnatryggingu
Enn betri húsvagnatrygging —sjáðu yfirlit yfir breytingarnar.

Tryggingin bætir

  • Tjón á húsvagni vegna skyndilegra, utanaðkomandi atvika sem falla undir skilmála.
  • Tjón vegna eldsvoða.
  • Foktjón á tímabilinu 1. maí til 30. september.
  • Þjófnað og skemmdarverk á húsvagninum eða hlutum hans.
  • Kostnað við björgun eða flutning á næsta viðgerðarverkstæði ef húsvagninn verður óökuhæfur vegna bótaskylds tjóns.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón vegna hefðbundins steinkasts af vegi.
  • Tjón vegna foks á lausum jarðefnum, t.d. sandi, möl eða mold.
  • Skemmdir vegna gælu- og meindýra.
  • Skemmdir sem hljótast af því að húsvagn tekur niðri á ósléttri akbraut eða þegar laust grjót hrekkur upp undir hann í akstri.
  • Foktjón á tímabilinu 1. október til 30. apríl, nema húsvagn sé geymdur inn í húsnæði.
  • Tjón sem verður við akstur þar sem opinberir aðilar hafa varað við akstri vegna vindstyrks eða vindhviða.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með húsvagna­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með húsvagnatryggingu?
Forvarnir
Umferð

Eftirvagnar

Á sumrin eru margir eftirvagnar í eftirdragi.
Lesa meira

Ef þú ert með ökutækjatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText