Hoppa yfir valmynd

Líftrygging

Af hverju á ég að líftryggja mig?underlineLíftrygging tryggir þínum nánustu fjárhagslegt öryggi ef hið óvænta gerist. Við viljum vera traust bakland í óvissu lífsins og bjóðum upp á frábæra líftryggingu.

Fjárhæð tryggingar er greidd út ef þú fellur frá á tryggingartímanum. Engu máli skiptir hvort orsökin er slys eða sjúkdómur.

Nánari upplýs­ingar um líftrygg­ingu

  • Ef þú hefur fyrir öðrum að sjá og ert með fjárhagslegar skuldbindingar er skynsamlegt að kaupa líftryggingu. Þú ákveður tryggingarfjárhæðina og hver rétthafi hennar er ef þú fellur frá.
  • Líftryggingarbætur eru greiddar út í einu lagi og eru þær skattfrjálsar og verðtryggðar. Það er mikilvægt að fjárhæðin endurspegli skuldbindingar og fjölskylduhagi þína, en ef breytingar verða getur það kallað á endurskoðun tryggingar.
  • Þú getur sótt um líftryggingu ef þú ert á aldrinum 18 til 62 ára og gildir hún til 75 ára aldurs. Frá 55 ára aldri lækkar líftryggingarfjárhæðin um ákveðið hlutfall árlega en verðið stendur í stað.
  • Börn þín eru sjálfkrafa líftryggð í gegnum líftrygginguna þína frá fæðingu til 18 ára aldurs. Fjárhæð bóta er tvær milljónir króna fyrir hvert barn.
  • Ef þú eignast barn getur þú hækkað fjárhæð líftryggingar þinnar um allt að 25% eða að hámarki 5 milljónir króna án þess að fara í sérstakt heilsufarsmat.
Nánari upplýsingar um líftryggingu

Af hverju á ég að velja VÍS?

  • Við bjóðum upp á hæsta hámarksaldur líftryggingar, til 75 ára aldurs. 
  • Við bjóðum upp á hæstu hækkun tryggingarfjárhæðar ef fjölskyldan stækkar, án þess að þú þurfir að fara í gegnum sérstakt mat. 
  • Við erum með hæstu dánarbætur barna, tvær milljónir. 
  • Það tekur mjög skamman tíma að sækja um trygginguna hjá okkur á netinu.
Algengar spurningar
Af hverju á ég að velja VÍS?

Tryggingarfjárhæð greiðist:

  • Við andlát tryggingartaka.
  • Við andlát barna tryggingartaka, frá fæðingu til 18 ára aldurs.

Tryggingarfjárhæð greiðist ekki:

  • Ef tryggingartaki lætur lífið vegna sjálfsvígs sem á sér stað innan eins árs frá því að tryggingin er tekin.
  • Ef andlát barns má rekja beint eða óbeint til ástands barnsins fyrir gildistöku tryggingarinnar.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Sjúkdómatrygging

Enginn býst við því að missa heilsuna vegna alvarlegra veikinda en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Sjúkdómatrygging er fjárhagsleg vernd og tryggir þér bætur ef þú greinist með einhvern þeirra sjúkdóma sem tryggingin nær yfir.

Lesa meira

Slysatrygging

Slysatrygging tryggir þér bætur vegna tannbrota og varanlegrar læknisfræðilegrar örorku í kjölfar slyss. Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum hvort sem slys verður við vinnu eða í frítíma.

Lesa meira

Sjúkratrygging

Sjúkratrygging tryggir þér bætur ef þú greinist með sjúkdóm sem leiðir til varanlegrar læknisfræðilegrar örorku eða tímabundins missis starfsorku.

Lesa meira

Barnatrygging

Barnatrygging veitir foreldrum eða forsjáraðilum vernd fyrir tekjumissi og ófyrirséðum kostnaði vegna alvarlegs slyss eða alvarlegra veikinda barns. Tryggingin inniheldur örorkuvernd.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með líftrygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við atburði? Þarftu að tilkynna atburð?

Getum við aðstoðað?

Viðbrögð við líf- og heilsutjóni

Tilkynna atburð
Ert þú með líftryggingu?
Forvarnir
Heilsa

Svefn og hvíld

Reglu­leg­ur svefn og hvíld er okkur lífs­nauðsyn­leg. Þótt hægt sé að stofna til skamm­tíma­skuld­ar í þess­um efn­um geng­ur það ekki til lengd­ar. At­hygl­in skerðist, lífs­gæði versna, þol­in­mæði minnk­ar, slysa­hætta eykst og and­leg líðan versn­ar svo eitt­hvað sé nefnt. En fólk þarf mis­mik­inn svefn. Börn á grunn­skóla­aldri þurfa alla jafna átta til ell­efu tíma svefn en full­orðnir sjö til níu klukku­stund­ir og stytt­ist gjarn­an eft­ir því sem fólk eld­ist. Svefn­inn get­ur verið mis­góður og velt­ur m.a. á hug­ar­ástandi okk­ar. Hann skipt­ist í nokk­ur stig og á nótt­unni flökk­um við á milli þeirra. Svefn­inn er mis­djúp­ur á hverju stigi og mis­mun­andi hvort okk­ur dreym­ir, hversu djúpt við önd­um, hversu mik­il vöðvaspenn­an er og hversu auðvelt er að vekja okk­ur.
Lesa meira

Ef þú ert með líf- og heilsutryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText