Hoppa yfir valmynd

Viðbót­ar­bruna­trygging

Endurspeglar brunabótamatunderlinefasteignar þinnar ekki kostnað við endurbyggingu fasteignarinnar eftir brunatjón? Ef svo er mælum við með viðbótarbrunatryggingu.

Nánari upplýs­ingar um viðbót­ar­bruna­trygg­ingu

  • Hefur þú staðið fyrir endurbótum á fasteign þinni eða byggt við fasteignina og í kjölfarið látið taka hana út en ekki fengið endurmat á brunabótamati hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem stendur undir endurbyggingarkostnaði? 
  • Viðbótarbrunatrygging tryggir þann mismun sem kann að vera milli brunabótamats og endurbyggingarkostnaðar fasteignar. Æskilegt er að tryggingarfjárhæðin dugi til að koma fasteigninni að fullu í fyrra horf eftir bruna. Skilyrði til bóta er að tjón sé umfram það sem lögboðna brunabótamatið segir til um.
  • Algengt er að bankastofnanir krefji lántakendur um staðfestingu á viðbótarbrunatryggingu ef upphæð lánsfjárhæðar er hærri en brunabótamat fasteignar.

Hér getur þú reiknað út hvort þú þurfir viðbótarbrunatryggingu.

Opna reiknivél
Nánari upplýsingar um viðbótarbrunatryggingu

Tryggingin bætir

  • Brunatjón.
  • Skyndilegt sótfall.
  • Fall loftfara á fasteign.
  • Slökkvi- og björgunaraðgerðir til að forðast eða takmarka tjón.

Tryggingin bætir ekki

  • Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Skemmdir vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman. Til dæmis vegna sóts frá reykháfi eða kertum.
  • Óbeint tjón vegna bruna eins og rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
  • Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er góð viðbót við lögboðna brunatryggingu. Húseigendatrygging veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum.

Lesa meira

Sumarbústaðartrygging

Það er fátt jafn gott og að slaka á uppi í bústað. Sumarbústaðatrygging hentar öllum sumarbústaðaeigendum sem vilja tryggja bústaðinn sinn vel.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með viðbót­ar­bruna­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með viðbótarbrunatryggingu?
Forvarnir
Heimilið

Eldvarnir

Um helm­ing­ur bruna á heim­il­um teng­ist raf­magni og raf­magns­tækj­um. Þar af er helm­ing­ur út frá elda­vél­um eða 25% allra bruna á heim­il­um. Í kring­um jól og ára­mót eru brun­ar tengd­ir kert­um og kertaskreyt­ing­um al­geng­ast­ir. Í Hand­bók heim­il­is­ins um eld­varn­ir sem Eld­varna­banda­lagið gaf út eru upplýsingar sem all­ir ættu að kynna sér. Bókina er einnig hægt að nálgast á ensku og pólsku.
Lesa meira

Ef þú ert með eignatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText