Hoppa yfir valmynd

Sumar­bú­stað­ar­trygging

Það er fátt jafn gott og að slaka áunderlineuppi í bústað. Sumarbústaðartrygging hentar öllum sumarbústaðaeigendum sem vilja tryggja bústaðinn sinn vel.

Nánari upplýs­ingar um sumar­bú­stað­ar­trygg­ingu

Sumarbústaðartrygging er í grunninn lögboðin brunatrygging en þú getur bætt við eftirfarandi verndum við trygginguna og þannig tryggt sumarbústaðinn þinn eins og best verður á kosið og eftir þínum þörfum.

  • Húseigendatrygging sumarbústaða er góð viðbót við lögboðna brunatryggingu. Húseigendatrygging sumarbústaða veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á sumarbústöðum. Þú getur einnig bætt við sérstakri vernd fyrir sólpallinn, heita potta, skjólveggi, hlið, girðingar og frístandandi hús.
  • Innbústrygging sumarbústaða tryggir innbú þitt og persónulega muni sem eru staðsettir í sumarbústaðnum að staðaldri. Tryggingin bæt­ir helstu tjón sem verða á inn­búinu vegna bruna, vatns, inn­brots, ráns, óveðurs eða hruns. Til viðbótar við hefðbundnu innbústrygginguna getur þú bætt við or­lof­stækja­tryggingu, trygg­ingu vegna of­hitn­un­ar á þvotti og kæli- og frysti­vöru­trygg­ingu.
  • Ef þú telur að brunabótamat sumarbústaðarins þíns endurspegli ekki kostnað við endurbyggingu hans, ef til tjóns kæmi, er gott að bæta viðbótarbrunatryggingu við sumarbústaðartrygginguna.
Nánari upplýsingar um sumarbústaðartryggingu

Tryggingin bætir

  • Brunatjón.
  • Skyndilegt sótfall.
  • Fall loftfara á fasteign.
  • Slökkvi- og björgunaraðgerðir til að forðast eða takmarka tjón.

Tryggingin bætir ekki

  • Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Skemmdir vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman. Til dæmis vegna sóts frá reykháfi eða kertum.
  • Óbeint tjón vegna bruna eins og rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
  • Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Húseigendatrygging sumarbústaða

Húseigendatrygging sumarbústaða veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á sumarbústöðum.

Lesa meira

Innbústrygging sumarbústaða

Innbústrygging sumarbústaða tryggir innbú þitt og persónulega muni sem eru staðsettir í sumarbústaðnum að staðaldri. Tryggingin bætir helstu tjón sem verða á innbúinu vegna bruna, vatns, innbrots, ráns, óveðurs eða hruns.

Lesa meira

Viðbótarbrunatrygging sumarbústaða

Ef þú telur brunabótamat sumarbústaðarins þíns endurspegli ekki kostnað við endurbyggingu hans, ef til tjóns kæmi, er gott að bæta viðbótarbrunatryggingu við sumarbústaðartrygginguna.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með sumar­bú­stað­ar­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með sumarbústaðartryggingu?
Forvarnir
Frítími

Ferðamennska

Ferðamönn­um hef­ur fjölgað mjög und­an­far­in ár, bæði inn­lend­um og er­lend­um og ferðamennska þeirra breyst. Göngu­ferðir hafa auk­ist mikið, ásamt því að felli­hýsi, tjald­vagn­ar, hjól­hýsi og hús­bíl­ar eru vin­sæl­ir ferðamát­ar yfir sum­ar­tím­ann. All­ir vilja kom­ast heil­ir heim. Til að svo megi verða er góður und­ir­bún­ing­ur ferðalags mik­il­væg­ur. Hann get­ur hins veg­ar verið mjög mis­mun­andi eft­ir því hvert för­inni er heitið, hvernig er ferðast og hvernig viðrar. 
Lesa meira

Ef þú ert með eignatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText