Hoppa yfir valmynd

Lögboðin bruna­trygging

Ef þú átt fasteign ber þérunderlineað tryggja hana gegn eldsvoða.

Þetta á við um allar tegundir fasteigna, hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, bílageymslur, útihús, sumarhús eða hesthús.

Nánari upplýs­ingar um lögboðna bruna­trygg­ingu

  • Tryggingarfjárhæð og verð tryggingar tekur mið af brunabótamati fasteignar. Brunabótamat endurspeglar endurbyggingarkostnað fasteignar.
  • Mikilvægt er að þú óskir eftir brunabótamati ef um nýbyggingu er að ræða eða endurmati á brunabótamati eldra húsnæðis og komir upplýsingum um matið til okkar. 
  • Ef brunabótamat stendur ekki undir endurbyggingarkostnaði getur þú keypt viðbótarbrunatryggingu.
  • Þegar þú kaupir lögboðna brunatryggingu myndast sjálfkrafa vernd hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands vegna ýmissa náttúruhamfara.
  • Við mælum með húseigendatryggingu til viðbótar við lögboðna brunatryggingu. Húseigendatrygging veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum. Algeng tjón sem bætt eru úr húseigendatryggingu eru vatnstjón frá lögnum, rúðubrot og óveðurstjón. Þessi tjón eru algengari en brunatjón og eru oft mjög kostnaðarsöm. Innbú og aðra lausamuni þarf að tryggja sérstaklega með F-plús fjölskyldutryggingu eða lausafjártryggingu ef um sérstaklega verðmæta hluti er að ræða. 
Nánari upplýsingar um lögboðna brunatryggingu

Tryggingin bætir

  • Brunatjón.
  • Skyndilegt sótfall.
  • Fall loftfara á fasteign.
  • Slökkvi- og björgunaraðgerðir til að forðast eða takmarka tjón.

Tryggingin bætir ekki

  • Skemmdir sem verða ef hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Skemmdir vegna sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman. Til dæmis vegna sóts frá reykháfi eða kertum.
  • Óbeint tjón vegna bruna eins og rekstrartap, töf á framleiðslu eða afhendingu vöru, missi húsaleigutekna og þess háttar.
  • Kostnað vegna hreinsunar úrgangs- eða eiturefna í umhverfi eða jarðvegi vegna bótaskylds atburðar.

Trygging frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands er einnig innifalin. Sú trygging bætir tjón vegna eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Húseigendatrygging

Húseigendatrygging er góð viðbót við lögboðna brunatryggingu. Húseigendatrygging veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem leiða til tjóns á fasteignum.

Lesa meira

Viðbótarbrunatrygging

Vertu vakandi! Endurspeglar brunabótamat fasteignar þinnar ekki kostnað við endurbyggingu fasteignarinnar eftir brunatjón? Ef svo er mælum við með viðbótarbrunatryggingu.

Lesa meira

Sumarbústaðartrygging

Það er fátt jafn gott og að slaka á uppi í bústað. Sumarbústaðatrygging hentar öllum sumarbústaðaeigendum sem vilja tryggja bústaðinn sinn vel.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með húseig­enda­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með húseigendatryggingu?
Forvarnir
Heimilið

Eldvarnir

Um helm­ing­ur bruna á heim­il­um teng­ist raf­magni og raf­magns­tækj­um. Þar af er helm­ing­ur út frá elda­vél­um eða 25% allra bruna á heim­il­um. Í kring­um jól og ára­mót eru brun­ar tengd­ir kert­um og kertaskreyt­ing­um al­geng­ast­ir. Í Hand­bók heim­il­is­ins um eld­varn­ir sem Eld­varna­banda­lagið gaf út eru upplýsingar sem all­ir ættu að kynna sér. Bókina er einnig hægt að nálgast á ensku og pólsku.
Lesa meira

Ef þú ert með eignatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText