Hoppa yfir valmynd

Bygg­inga­trygging

Byggingatrygging er fyrir allaunderlinehúsbyggjendur sem vilja hafa sitt á hreinu á meðan byggt er.

Tryggingin samanstendur af bruna-, húseigenda-, slysa- og ábyrgðartryggingu og miðast við að tryggja þig og þitt eins vel og hægt er á meðan á framkvæmdum stendur. 

Nánari upplýs­ingar um bygg­inga­trygg­ingu

  • Byggingatrygging er sérsniðin að þínum þörfum.
  • Tryggingin tekur meðal annars á tjónum af völdum óveðurs og hruns sem og slysatjónum sem þeir lenda í sem vinna við húsið á þínum vegum, án þess að þiggja laun fyrir.
  • Þá bætir tryggingin einnig tjón á eigin verkfærum, vinnupöllum og vinnuskúrum á byggingarstað.
Nánari upplýsingar um byggingatryggingu

Bruna- og húseigendatrygging · Tryggingin bætir

  • Tjón af völdum eldsvoða, eldinga og sprenginga.
  • Sótfall, til dæmis vegna sprengingar frá kynditækjum.
  • Vatnstjón sem verður vegna leka úr leiðslukerfi.
  • Tjón af völdum hruns eða sigs.
  • Óveðurstjón þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu.
  • Skemmdir á fasteign vegna innbrots eða þjófnaðar á byggingarstað.
  • Brot á gleri eftir að það hefur verið sett á sinn endanlega stað.

Bruna- og húseigendatrygging · Tryggingin bætir ekki

  • Tjón vegna skammhlaups.
  • Tjón vegna framkvæmda með sprengiefni.
  • Skemmdir á leiðslum eða kostnað við endurlagningu þeirra.
  • Tjón vegna utanaðkomandi vatns.
  • Tjón við ísetningu glers.
  • Afleidd tjón vegna ofangreindra atriða.
  • Tjón sem stafa af því að rangt eða gallað efni er notað.

Ábyrgðartrygging · Tryggingin bætir

  • Beint líkams- eða munatjón þriðja aðila ef skaðabótaábyrgð hefur fallið á þig sem eiganda fasteignar.

Ábyrgðartrygging · Tryggingin bætir ekki

  • Sektir eða málskostnað í sambandi við refsimál.
  • Tjón sem þeir sem falla undir trygginguna valda hver öðrum.
  • Tjón á eignum sem stafa af eldsvoða, reyk, sóti eða sprengingu.
  • Tjón á munum sem þú hefur fengið til láns og hefur í vörslu þinni.

Slysatrygging · Tryggingin bætir

  • Bætur vegna slyss sem þú og þitt fólk verður fyrir ef það leiðir til andláts, örorku, tímabundins missis starfsorku eða tannbrots.

Slysatrygging · Tryggingin bætir ekki

  • Slys sem verða í handalögmálum.
  • Slys sem verða af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Slys af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Slys sem verða beint eða óbeint vegna blindu, af völdum mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Slys sem verða af völdum vélknúinna, skráningarskyldra ökutækja.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með bygg­inga­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með byggingatryggingu?
Forvarnir
Heimilið

Eldvarnir

Um helm­ing­ur bruna á heim­il­um teng­ist raf­magni og raf­magns­tækj­um. Þar af er helm­ing­ur út frá elda­vél­um eða 25% allra bruna á heim­il­um. Í kring­um jól og ára­mót eru brun­ar tengd­ir kert­um og kertaskreyt­ing­um al­geng­ast­ir. Í Hand­bók heim­il­is­ins um eld­varn­ir sem Eld­varna­banda­lagið gaf út eru upplýsingar sem all­ir ættu að kynna sér. Bókina er einnig hægt að nálgast á ensku og pólsku.
Lesa meira

Ef þú ert með eignatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText