Kortatryggingar Íslandsbanka
Fá tilboðVÍS hefur umsjón með ferðatryggingum kreditkorta sem gefin eru út af Íslandsbanka.
Athugið: Nær einnig til korta sem áður voru gefin út af Kreditkorti.
Tryggingar kreditkorta eru mismunandi eftir tegundum og því mikilvægt að skoða yfirlitstöflu hér að neðan en þar má sjá upplýsingar um vátryggingarfjárhæðir, vernd og gildistíma tryggingar.
Þarf að greiða ferðina með kortinu til að trygging gildi?
Ferðir erlendis:
- Nei.
Ferðir innanlands:
- Já.
- Annað hvort með því að helmingur ferðakostnaðar sé greiddur með kortinu, nýttar séu raðgreiðslur eða gistirými sé bókað fyrirfram og kortanúmer gefið upp til greiðslu. Nauðsynlegt er að ganga frá kaupum og/eða bókunum áður en lagt er af stað í ferðina frá heimili vátryggðs.
Ef ég er á ferðalagi lengur en sem nemur gildistíma tryggingar hvað get ég gert?
- Hægt er að kaupa framlengingu á gildistíma tryggingar á meðan á ferðalagi stendur. Framlengingin nemur upphaflegum gildistíma en aðeins er hægt að framlengja einu sinni fyrir hverja ferð. Dæmi: Hægt er að framlengja gildistími tryggingar sem er 60 dagar í 120 daga.
Er bílaleigutrygging innifalin í þinni kortatryggingu?
Innifalið
Valkvæðar viðbætur
Neyðarþjónusta um heim allan
Ef alvarlegt slys eða veikindi verða erlendis skal hafa samband við SOS International neyðarþjónustuna í síma +(45) 70 10 5050. Þar er vakt allan sólarhringinn og getur sérþjálfað starfsfólk veitt aðstoð og þjónustu við að útvega lækni, sjúkrahúsavist, heimflutning og annað ef slys eða veikindi ber að höndum á ferðalagi.
Skilmálar og nánari upplýsingar
-
pdf Yfirlitstafla fyrir kort Íslandsbanka (49 Kb) -
pdf Almennt kort með grunntryggingum Íslandsbanka (GT80) (442 Kb) -
pdf Almennt kort / Stúdenta kreditkort Íslandsbanka (GT81) (393 Kb) -
pdf Gull- og Classickort Íslandsbanka (GT82) (406 Kb) -
pdf Gull og Silfur viðskiptakort Íslandsbanka (GT83) (541 Kb) -
pdf Platinum og Platinum viðskiptakort Íslandsbanka (GT84) (529 Kb) -
pdf MasterCard Platinum - Premium - Business Icelandair frá Kreditkorti (GT87) (570 Kb) -
pdf Silfurkort frá Kreditkorti (GT90) (375 Kb) -
pdf Silfurkort með betri tryggingum frá Kreditkorti (GT91) (414 Kb) -
pdf Gullkort frá Kreditkorti (GT92) (415 Kb) -
pdf Einkakort frá Kreditkorti (GT93) (559 Kb) -
pdf Gull Viðskiptakort og Corporate kreditkort frá Kreditkorti (GT94) (558 Kb) -
pdf Platinum og Platinum viðskiptakort frá Kreditkorti (GT95) (562 Kb) -
pdf Innkaupakort ríkisins og Innkaupakort MC frá Kreditkorti (GT98) (421 Kb)