Samfélagsleg verkefni
VÍS er virkur styrktaraðili á sviði líknarmála, menningar og íþrótta og styður við bakið á fjölmörgum félagasamtökum og aðilum á þeim sviðum.
Það er stefna VÍS að styðja og styrkja verkefni sem til heilla horfa fyrir land og þjóð. Þannig ber félagið ábyrgðina með viðskiptavinum sínum. VÍS styrkir fjölmörg félagasamtök á sviði líknarmála, menningarmála og íþróttamála.
VÍS er styrktaraðili eftirfarandi aðila og verkefna:

Barnaheill
Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru árið 1989. VÍS er stoltur styrktaraðili samtakana.

LÍF styrktarfélag
VÍS styrkir LÍF styrktarfélag. LÍF styrktarfélag vinnur að því að styrkja fæðingarþjónustu og kvenlækningar á kvennadeild Landspítalans.

Sinfóníuhljómsveit Íslands
VÍS er bakhjarl Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Handknattleikssamband Íslands
VÍS er einn af aðalstyrktaraðilum HSÍ og hefur verið bakhjarl íslenska landsliðsins í handbolta um árabil.


Fótboltahátíð VÍS og Þróttar
VÍS er aðalstyrktaraðili að árlegu knattspyrnumóti Þróttar. Mótið er haldið í lok maí / byrjun júní árlega í Laugardalnum fyrir 6. flokk, 7. flokk og 8. flokka drengja og stúlkna.

Landssamband hestamanna
VÍS er aðalstyrktaraðili Landssambands hestamanna og einn af bakhjörlum landsliðs Íslands í hestaíþróttum. Landsamband hestamanna er heildarsamtök hestamannafélaga víðsvegar af landinu með yfir 8.000 félagsmenn.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?

