Hleð spilara!

Líftryggingafélag Íslands

Líftryggingafélag Íslands hf. starfar undir vörumerki VÍS


Félagið var stofnað árið 1990 við sameiningu Líftryggingafélagsins Andvöku og BÍ líftryggingar. Til sameiningarinnar kom í kjölfar sameiningar Samvinnutrygginga og Brunabótafélags Íslands í Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) Núverandi eigandi félagsins er VÍS.

Líf- og sjúkdómatryggingar

  • Líftrygging þar sem bætur eru greiddar í einu lagi við fráfall hins tryggða.
  • Sjúkdómatrygging tekur á því ef hinn tryggði greinist með sjúkdóm sem tryggingin nær til eða þurfi hann að gangast undir aðgerð. Eru honum þá greiddar bætur í einu lagi.
  • Söfnunarlíftrygging byggir á samspili reglubundinnar söfnunar og líftryggingar.
  • Söfnunartrygging er söfnunarlíftrygging sem byggir á samningi um sveigjanlegan sparnað en minni áhersla er lögð á líftryggingarþáttinn.
  • Fjárfestingatrygging eru söfnunarlíftrygging þar sem gerður er samningur um sveigjanlegan sparnað sem lagður er fyrir í eitt skipti eða fleiri eftir því sem tryggingartaka hentar. Lágmarks líftrygging er innifalin.
  • Lífeyrissöfnun er ætluð til varðveislu og ávöxtunar á viðbótarlífeyrissparnaði.
  • Hóplíftryggingar, t.d fyrir starfsmenn fyrirtækja og meðlimi félagasamtaka.
  • Uppvaxtarsjóður er söfnunarlíftrygging þar sem aðstandandi stofnar sjóð í nafni barns og leggur inn ákveðna greiðslu mánaðarlega. Sparnaðurinn er bundinn fram til 18 ára aldurs barnsins.