VÍS Fréttir
Í VÍS fréttum, fréttablaði VÍS, er leitast við að fjalla um áhugaverð málefni sem tengjast starfssemi VÍS. Hér er að finna útgáfur blaðsins frá upphafi.

VÍS Fréttir - 2011
Í blaðinu er meðal annars er rætt við Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur nýráðinn forstjóra VÍS, Jóhannes Kristjánsson skemmtikraft og Unni Ösp sem var nýbökuð móðir þegar hún greindist með brjóstakrabbamein en bæði nutu góðs af sjúkdómatryggingu VÍS, garðyrkjubónda á Böðmóðsstöðum sem horfði á lífsviðurværi sitt verða eldi að bráð og landsliðsþjálfara kvenna og karla í handknattleik. Jafnframt er ítarleg umfjöllun um forvarnir og þá víðtæku þjónustu sem VÍS býður viðskiptavinum sínum.
Lesa nánar
VÍS Fréttir - 2009
Í blaðinu er viðtal við Daníel Kjartan Ármannsson sem var með sjúkdómatryggingu hjá VÍS er hann greindist með MS í vetur. Einnig er viðtal við Ragnar Ingibergsson sem var fyrir því að brotist var inn á heimili hans á gamlárskvöld á síðasta ári. Þá er umfjöllun um dýratryggingar VÍS, þríburaforeldra sem ferðuðust með börnin sín í barnabílstólum VÍS, ítarleg umfjöllun um þjónustuskrifstofur VÍS og gamlar og góðar myndir frá starfsemi félagsins í 20 ár. VÍS-fréttir fjalla líka um F plús...
Lesa nánar
VÍS Fréttir - 2006
Í blaðinu er sagt frá því þegar VÍS gaf Sjónstöð Íslands snertilinsutæki, fjallað er um fyrirmyndarsveitafélagið Latabæ og svo er viðtal við þrítugan fjölskyldufaðir, Vilhjálm Kára Haraldsson, sem greindist með MS sjúkdóminn.
Lesa nánar
VÍS Fréttir - 2005 haust
Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Jóhannes í Múlakaffi og hann segir frá reynslu sinni á VÍS. Marteinn Geirsson, stöðvarstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, segir frá reynslu sinni sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður í yfir þrjá áratugi.
Lesa nánar
VÍS Fréttir - 2005 vor
Í þessu blaði er meðal annars sagt frá bruna í Hrútatungu, farið er í gegnum örlagasögu Benna og rætt við Jón Sverrir Jónsson, vaktmann á Reykjalundi, en hann hefti útbreiðslu elds með því að bregðast rétt við. Einnig er viðtal við Eggert Skúlason en hann hjólaði hringveginn til fjáröflunar fyrir Hjartaheill.
Lesa nánar
VÍS Fréttir - 2004 haust
Í blaðinu er meðal annars rætt við Ragnheiði Davíðsdóttur um öryggi barna. Einnig er fjallað um sögu tíkarinnar Heru á Selfossi og sagt frá samstarfi VÍS og Þjóðminjasafnsins.
Lesa nánar
VÍS Fréttir - 2003 haust
Í blaðinu er meðal annars fjallað um átakið “Þjóð gegn þunglyndi” sem VÍS styrkti, svo er viðtal við Benna og Elínu en þau tóku bæði þátt í forvarnaauglýsingunni “Heppinn” sem vakti mikið umtal og eftirtekt í sumar og einnig er umfjöllun um dýratryggingar.
Lesa nánar- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?

