Flokkun vátrygginga
Vátryggingar eru venjulega flokkaðar í tvo meginþætti:
- Frumtryggingar
- Endurtryggingar
Önnur flokkun trygginga er
- Skaðatryggingar
- Persónutryggingar
Frumtryggingar eru vátryggingasamningar sem vátryggingafélag gerir við einstaklinga eða fyrirtæki sem það selur vátryggingar. Frumtryggingum er síðan skipt nánar í greinaflokka. Þeir eru m.a.:
- Eignatryggingar nefnast einu nafni vátryggingar á eignum og verðmætum einstaklinga og heimila sem og í atvinnurekstri. Má þar nefna brunatryggingar fasteigna, brunatryggingar lausafjár, fjölskyldutryggingar, húseigendatryggingar, glertryggingar, atvinnurekstrartryggingar og véla- og tækjatryggingar.
- Sjótryggingar eru samheiti yfir vátryggingar á efnislegum verðmætum í útgerð og rekstri skipa og báta. Má þar nefna skipatryggingar, afla- og veiðarfæratryggingar og farangurstryggingar skipverja.
- Flugtryggingar eru að meginstofni húf- og ábyrgðartryggingar flugvéla, stjórnenda þeirra og farþega.
- Farmtryggingar tryggja farm í flutningum innanlands og til og frá landinu.
- Ökutækjatryggingar greinast í lögboðnar ökutækjatryggingar og frjálsar ökutækjatryggingar en þær bæta tjón vegna umferðaróhappa og slysa. Ábyrgðartrygging ökutækis og slysatrygging ökumanns eru lögboðnar vátryggignar. Kveðið er á um bóttasvið trygginganna í umferðarlögum. Til frjálsra ökutækjatrygginga teljast m.a. kaskótrygging og framrúðutrygging.
- Greiðslu- og efndavátryggingar. Með greiðsluvátryggingu er unnt að kaupa sér vernd gagnvart því ef ekki er staðið við gerða samninga um greiðslur. Einnig er hægt að kaupa sér vernd gegn því ef ekki er staðið við gerða samninga.
- Ábyrgðartryggingar eru samheiti fyrir sérstakar vátryggingar sem bæta tjón vegna skaðabótaábyrgðar gagnvart þriðja manni samkvæmt lögum og eru þær á boðstólum fyrir atvinnurekstur, ýmsa þjónustustarfsemi og einstaklinga. Algengast er að ábyrgðartryggingar einstaklinga séu hluti af samsettum vátryggingum, t.d. fjölskyldu- og fasteignatryggingum. Í seinni tíð hafa komið fram nýjar tegundir ábyrgðartrygginga, s.s. starfsábyrgðartryggingar ýmissa starfsstétta og framleiðsluábyrgðartryggingar.
Sameiginlegt með framangreindum flokkum frumtrygginga er að vátryggðar eru eignir, verðmæti og hagsmunir. Þær eru því nefndar skaðatryggingar. Eftirtaldir þrír greinaflokkar taka til vátrygginga á lífi, limum og heilsu manna og hafa vátryggingar af því tagi verið nefndar persónutryggingar:
- Slysa- og sjúkratryggingar eru vátryggingar þar sem bætur eru greiddar verði vátryggður fyrir slysi eða heilsutjóni. Helstu gerðir slysatrygginga eru almennar slysatryggingar einstaklinga, samningsbundnar slysatryggingar ýmissa starfsstétta og ferðatryggingar.
- Líftryggingar. Algengastar eru vísitölubundnar áhættulíftryggingar einstaklinga eða hópa þar sem einungis dánaráhætta er vátryggð.
- Sjúkdómatrygging. Greinist hinn tryggði meðeinhvern af tilteknum sjúkdómum sem tryggingin nær til eða þurfi hann að gangast undir aðgerð eru honum greiddar bætur.
Endurtryggingar eru vátryggingasamningar þar sem bæði vátryggingartakinn og vátryggjandinn eru vátryggingafélög. Vátryggingafélag kaupir endurtryggingarvernd til þess að draga úr eigin áhættu félagsins og dreifir áhættunni þannig til fleiri aðila. Endurtryggingarsamningar eru bæði gerðir við innlend og erlend tryggingafélög.
Flokka má vátryggingar í frjálsar vátryggingar og lögboðnar vátryggingar.
- Frjálsar vátryggingar er mönnum í sjálfsvald sett hvort þeir kaupa eða ekki. Þetta eru til dæmis: Kaskótrygging ökutækja, framrúðutrygging, heimilistrygging, húseigendatrygging, almenn slysatrygging, sjúkdómatrygging, söfnunarlíftrygging og áhættulíftrygging.
- Skylduvátryggingar eru hins vegar vátryggingar sem skylt er að kaupa. Sé það gert samkvæmt lagaboði nefnast þær lögboðnar vátryggingar, en sé það samkvæmt samningsákvæðum nefnast þær samningsbundnar vátryggingar.
- Lögboðnar vátryggingar eru t.d. ábyrgðartrygging ökutækja, slysatrygging ökumanns, brunatrygging húseigna og ýmsar starfsábyrgðartryggingar starfsstétta.
- Samningsbundnar vátryggingar eru t.d. slysatryggingar launþega samkvæmt kjarasamningum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
