Fróðleikur um tryggingar
Ýmis fróðleikur um tryggingar, tryggingastarfsemi á Íslandi, eðli trygginga og ýmislegt annað sem gott er að vita fyrir þá sem vilja kynna sér tryggingar mjög ýtarlega.
Lög
Hér er að finna lista yfir vátryggingatengd lög sem er að finna á vef Alþingis. Einnig er hægt að nálgast reglugerðir sem settar hafa verið í tengslum við lögin.
Lesa nánarSkaðabótaréttur
Samkvæmt íslenskum rétti bera menn ábyrgð á því tjóni, sem þeir valda öðrum með ólögmætum og saknæmum hætti. Þannig bera menn skaðabótaábyrgð vegna tjóns, sem valdið er fyrir mistök eða vanrækslu.
Lesa nánarVátryggingartaka
Þegar aðili óskar eftir því að vátryggja einhverja hagsmuni sína, snýr hann sér til vátryggingafélags með beiðni þar að lútandi. Ýmsir reyna að hafa þann háttinn á, að hafa sem flestar eða allar tryggingar sínar hjá einu tryggingarfélagi. Af því skapast aukið hagræði. Þá er og við því að búast, að bæði starfsmenn vátryggingafélaga og vátryggingartaki sjálfur hafi betri yfirsýn yfir vátryggingarverndina, sé hún að mestu sótt til eins félags.
Lesa nánarSkilgreining hugtaka
Upplýsingar um ýmis algeng hugtök sem tengjast tryggingum svo sem: Ábyrgðartryggingar, Ágóðaskuld, Eigin tjón, Endurtryggingaiðgjöld og önnur orð sem gott er að kunna skil á þegar tryggingar eru annars vegar.
Lesa nánarTryggingavernd
Tryggingaverndinni verður í grófum dráttum skipt í þrennt, eftir því hver hana veitir. Í fyrsta lagi má nefna tryggingar samkvæmt almannatryggingarlögum. Í annan stað er sú tryggingarvernd, sem lífeyrissjóðir veita. Í þriðja og síðasta lagi eru svo þær tryggingar, er menn sækja til vátryggingafélaganna.
Lesa nánarSöguleg þróun
Um fyrstu tilraunir manna til að tryggja hagsmuni sína skal eftirfarandi tilfært úr grein Arnljóts Björnssonar f.v. hæstaréttardómara um vátryggingar í Úlfljóti, tímariti laganema (3. tbl. 1971 bls. 192-193):
Lesa nánar- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
