VÍS styrkir SÁÁ um hálfa milljón króna
VÍS afhenti í gær Þórarni Tyrfingssyni yfirlækni SÁÁ hálfa milljón króna til styrktar unglingastarfi samtakanna. Gjöfin er í tengslum við verkefnið Góði Gítarinn sem VÍS, Hamborgarafakrikkan og Hemmi Gunn standa að. Góði Gítarinn er hljóðfæri sem skartar eiginhandaráritunum fjölda íslenskra tónlistarmanna sem komu í þáttinn Það var lagið hjá Hemma Gunn og verður varðveittur um ókomna tíð á Hamborgarafabrikkunni.
„Gott mál ! Sannarlega þörf á að passa upp á unga fólkið á þessum síðustu og verstu tímum. Þessi stuðningur kemur sér sérstaklega vel og gefur okkur tækifæri að vekja athygli á nýrri og aukinni göngudeildarþjónustu í Von við Efstaleiti fyrir unglinga sem vilja taka sig á og þurfa ekki að fara á Vog“, segir Þórarinn Tyrfingsson.
VÍS er verndari Góða Gítarsins. „Við teljum verkefnið afskaplega verðugt og vonum að styrkurinn nýtist vel í því mikilvæga starfi sem unnið er í forvörnum í unglingastarfi SÁÁ“, segir María Hrund Marinósdóttir, markaðsstjóri VÍS.
„Þegar við gerðum þættina Það var lagið á Stöð 2 datt mér strax í hug að kaupa gítar og fá alla tónlistarmennina sem komu í þáttinn til að árita hann. Ég sá alltaf fyrir mér að þessi gítar gæti á einhvern hátt komið SÁÁ til góðs. Með hjálp VÍS og Hamborgarafabrikkunnar hefur það tekist og það er frábært“ segir Hemmi Gunn.
Góði Gítarinn hefur fengið öndvegissess á Hamborgarafabrikkunni, í glerskáp við innganginn, þar sem gestir Fabrikkunnar geta virt hann fyrir sér frá öllum hliðum og glímt við að ráða í hinar fjölmörgu eiginhandaráritanir sem á honum eru.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
