Hleð spilara!

Lífis tilnefnt til íslensku auglýsinguverðlaunanna

16.02.2012


Tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna voru tilkynntar í morgun. VÍS á þar eina tilnefningu úr auglýsingaherferð okkar fyrir Lífis en þar erum við tilnefnd í flokki um veggspjöld og skilti. 

VÍS á einnig hlut í annari tilnefningu með LÍF- styrtarfélagi en auglýsingarherferðin fær tilnefningu í flokknum „árangursríkasta auglýsingaherferðin“. Auglýsingar VÍS og LÍF.

ÍMARK, samtök markaðsfólks á Íslandi, í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA), verðlaunar nú í tuttugasta og sjötta sinn auglýsingar, sem sendar voru í samkeppnina Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin. Verðlaunaafhendingin fer fram föstudaginn 24. febrúar í Hörpu. VÍS og Lífís afhenda þar verðlaun í flokki almannaheillaauglýsinga. Nánari upplýsingar um verðlaunin má finna á vef ÍMARK.

Til baka