Strætó bs. hlýtur Forvarnarverðlaun VÍS 2012
Á ráðstefnunni Forvarnir í fyrirrúmi sem haldin var í dag var Strætó bs., ISAM og Norðurþingi veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í forvörnum og öryggismálum.
Strætó bs. hreppti Forvarnarverðlaun VÍS 2012 en þau eru veitt fyrir framúrskarandi og fyrirmyndar forvarnir. Árangur Strætó í öryggismálum undanfarin þrjú ár er til sannkallaðrar eftirbreytni. Að meðaltali urðu um 300 tjón á ári áður en farið var í markvissar aðgerðir til að fækka þeim. Það tókst svo um munar því á síðasta ári urðu 82 tjón eða um 73% færri en áður var algengt. Tekist hefur að mynda öfluga öryggismenningu og öryggisvitund á meðal starfsmanna. Með ítarlegri skráningu allra atvika og tjóna, rannsókna á þeim, miðlun upplýsinga til starfsmanna og öflugu forvarnarstarfi hefur tekst vel til. Þá hefur vinnuverndarstarf hjá Strætó eflst mjög á sama tíma þar sem umgengni og skipulag vinnuumhverfis er líkt og best getur orðið.
Hjá Íslensk Ameríska - ISAM vinnur öflug liðsheild stöðugt að því að bæta hvers kyns öryggi og eldvarnir. Gert hefur verið áhættumat fyrir alla vinnustaði samsteypunnar og á hverjum þeirra starfar öryggistrúnaðarráð. Þá er rík áhersla lögð á að allir starfsmenn fylgi verkferlum, taki virkan þátt í gæðastarfi og af heilum hug.
Norðurþing er á meðal þeirra sveitarfélaga sem gjörst hafa nýtt sér stöðumat fyrirtækja hjá VÍS enda hefur heildarforvarnareinkunnin hækkað hratt. Það er ekki hvað síst að þakka aukinni öryggisvitund starfsmanna, betri brunavörnum og bættri umgengni. Samstarf VÍS og Norðurþings er orðið að hornsteini forvarnarvinnu VÍS með fyrirtækjum á svæðinu.
Þetta er í þriðja sinn sem Forvarnarverðlaun VÍS eru veitt fyrirmyndarfyrirtækjum á þessu sviði. Í fyrra hreppti Rio Tinto Alcan verðlaunin og Þörungaverksmiðjan á Reykhólum varð hlutskörpust árið 2010.
Til baka
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
