Forvarnir í fyrirrúmi - ráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins
Húsfyllir var á ráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins sem haldin var í dag undir yfirskriftinni "Forvarnir í fyrirrúmi". Sjónum var einkum beint að öryggismálum fyrirtækja allt frá hönnum til loka framkvæmda bæði í stórum verkum sem smáum. Ennfremur fengu gestir að vita hvernig breyta má úrgangi í verðmæti.
Kristján Kristinsson, öryggisstjóri nýframkvæmda hjá Landsvirkjun, fjallaði um „núllsýn“ Landsvirkjunar. Það er stefna sem byggir á reynslu af öryggismálum við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Í ljósi þeirrar reynslu sem fékkst þar var ákveðið að setja öryggismál í næsta stóra verkefni Landsvirkjunar í algjöran forgang, allt frá hönnun mannvirkja til framkvæmda á verkstað. Markmiðið er slysalaus vinnustaður með sérstakri áherslu á að koma í veg fyrir alvarleg slys. Bygging Búðarhálsvirkjunar er fyrsta verkefni Landsvirkjunar þar sem unnið er samkvæmt þessari stefnu.
„Vinnuvernd á hönnunarstigi hefur verið vanmetin,“ segir Leifur Gústafsson, fagstjóri í þróunar- og eftirlitsdeild hjá Vinnueftirlitinu sem kynnti niðurstöður rannsókna á þessu sviði. „Rannsóknir á vinnuslysum hafa leitt í ljós að tiltölulega hátt hlutfall vinnuslysa tengjast rangri eða slæmri hönnun. Einnig er hægt að sýna fram á bein tengsl aukinnar framleiðni og góðrar hönnunar.“
Brynjar Hallmannsson, öryggissérfræðingur hjá ISAL svaraði m.a. spurningunum hvers vegna fyrirtæki ætti yfir höfuð að rannsaka vinnuslys? Hver sé hagur þess og starfsmannsins sem slasast? Hverju huga þurfi að við rannsóknina og hvað gera eigi við niðurstöðurnar? Brynjar segir stjórnendur þurfa að svara þessum og mörgum fleiri spurningum vilji þeir innleiða eigin rannsóknir á vinnuslysum í fyrirtækjum en slíkt sé mjög mikilvægt.
Gísli Níls Einarsson, forvarnarfulltrúi fyrirtækja hjá VÍS, reri á svipuð mið og tíundaði lykilhlutverk æðstu stjórnenda við að innleiða virka öryggismenningu í sínum ranni. Megin ábyrgð og hlutverk þeirra sé að setja fram skýra sýn í öryggismálum og skapa traust og trúverðugleika meðal starfsmanna gagnvart viðfangsefninu. „Markmiðið er að stuðla að öruggari vinnustað, stöðugri og öruggari rekstri og þjónustu. Ríkari kröfur tryggingafélaga á þessu sviði þýða að þau sjálf verða að vera öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar,“ sagði Gísli Níls og fór yfir hvernig VÍS hefur lagt metnað sinn í það.
Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnasviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, kynnti hugmyndafræðina á bak við "Eigið eftirlit í eldvörnum" fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Hún gengur út að fyrirtæki taki öryggi sitt í eigin hendur með reglulegu, skipulögðu og skráðu eftirliti á eldvörnum. Hvernig því er komið á, framkvæmt og fylgt eftir.
Magnús E. Svavarsson, framkvæmdastjóri Vörumiðlunar, fjallaði um öryggismál í vöruflutningum á vegum úti. Helstu áhættuþætti í akstri s.s. aksturshraða, veðurfar, misjafnar aðstæður á vegum, lestun og frágang farms og mannlega þáttinn. Hann fór yfir helstu ráð til forvarna og lagði mat á árangur þeirra.
„Úrgangur er verðmæt söluvara,“ segir Ragna I. Halldórsdóttir, deildarstjóri markaðs- og fræðsludeildar hjá Sorpu. Hún ræddi m.a. um hver ættu að vera fyrstu skref fyrirtækja í umhverfismálum. Hvaða þætti þurfi að hafa í huga svo umhverfismál verði hluti af daglegum rekstri en ekki bara eitthvað sem gripið er til á tyllidögum hjá fyrirtækjum. Gott fordæmi stjórnenda, gott skipulag og fræðsla séu skynsamleg fyrstu skef á vegferð fyrirtækja í umhverfismálum. Og í stað þess að greiða fyrir urðun úrgangs megi fá borgað fyrir ruslið; rétt flokkað og meðhöndlað.
Til baka- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
