Hleð spilara!

Frumkvæði og forysta æðstu stjórnenda í öryggismálum

27.01.2012

Í Viðskiptablaðinu í gær birtist grein forvarnarfulltrúa fyrirtækja hjá VÍS um hvernig æðstu stjórnendur fyrirtækja geta náð árangri í öryggismálum með því að sýna frumkvæði og forystu í þeim.

Áður en stjórnendur fara í vegferð sína verða þeir að líta í eigin barm og spyrja sig meðal annars að því hvernig haga ég mínum eigin öryggismálum í og utan vinnu og er ég góð fyrirmynd?

Því næst þurfa þeir að setja fram sína sýn í öryggismálum, kynna hana fyrir starfsmönnum, fylgja henni eftir og halda á lofti, vera öðrum til fyrirmyndar og sýnilegir í orðum og gjörðum. Þannig efla þeir samkennd og mynda traust og trúðverðugleika gagnvart starfsmönnum á sýn og áherslur fyrirtækisins í öryggismálum.

Markmiðið er ekki einunungis að búa til stuðningsmenn í öryggismálum heldur fleiri leiðtoga í þeim innan fyrirtækisins.

Hér er hægt að nálgast alla greinina Frumkvæði og forysta í öryggismálum

Til baka