Hleð spilara!
Forvarnaráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2012
27.01.2012
Fimmtudaginn 2. febrúar, verður árleg ráðstefna um forvarnar- og öryggismál fyrirtækja haldin á vegum VÍS og Vinnueftirlitsins.
Meðal annars verður fjallað um núllsýn í öryggismálum sem gengur út á að öll slys sé hægt að fyrirbyggja, eigin rannsóknir á vinnuslysum, eigið eldvarnaeftirlit, öryggi í vöruflutningum, innleiðingu öryggismenningar og fyrstu skrefin í umhverfismálum. Þá verða forvarnarverðlaun veitt fyrirtækjum sem sköruðu fram úr í forvarnar- og öryggismálum árið 2011.
Ráðstefnan fer fram í húsakynnum VÍS í Ármúla 3, á 5. hæð á milli kl. 13 og 16.
Stjórnendur fyrirtækja eru sérstaklega hvattir til að mæta. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér.
Til baka- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
