Hleð spilara!

Fósturlandsins freyjur þjóðlegar á þorra

20.01.2012

Bóndadagur í VÍSÞað hljóp á snærið hjá karlkyns starfsmönnum VÍS í Ármúla í morgun þegar þeirra beið drekkhlaðið veisluborð að góðum og gömlum íslenskum sið. Hnallþórur, pönnukökur, flatkökur og brauðtertur í boði kvenkyns vinnufélaga í tilefni bóndadagsins. Þá klæddu bæði konur og karlar sig upp á, ýmist í upphlut, víkingaklæði, lopapeysu eða annan þjóðlegan klæðnað.

Ingibjörg Ólafsdóttir er ein þeirra sem átti frumkvæðið að þessari skemmtilegu uppákomu. „Við gerum alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir strákana okkar á bóndadeginum og nú fannst okkur tímabært að endurvekja gamaldags sunnudagskaffi að hætti ömmu. Skapa smá stemningu sem vonandi smitar út frá sér til viðskiptavinanna. Strákarnir eiga þetta svo skilið því þeir eru alltaf svo almennilegir við okkur á konudaginn.“

Til baka