Hleð spilara!

Strákarnir okkar á Facebook

16.01.2012

Í gær hófst Evrópumótið í handknattleik í Serbíu. Fyrsti leikur Íslands er í kvöld en þá mæta þeiri liði Króata. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og hefst klukkan 19:10. VÍS er eitt þeirra fyrirtækja sem kosta útsendingarnar frá mótinu á RÚV enda er félagið stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins. Að þessu tilefni hefur markaðsdeild VÍS látið útbúa sérstakar EM-auglýsingar þar sem leikmenn íslenska landsliðsins eru í aðalhlutverki.

Einnig er VÍS með sérstaka Facebook-síðu tileinkaða strákunum okkar en þar er að finna ýmislegt um mótið og létta leiki þar sem vinir okkar geta unnið sér inn miða í bíó og margt fleira. Endilega leitaðu af síðunni á Facebook en hana finnur þú undir nafninu "Strákarnir okkar- EM 2012".

Áfram Ísland!

Til baka