Stöldrum við
Nú þegar ein stærsta ferðahelgi ársins fer í hönd er full ástæða til að staldra við og huga að því hvort ástæða sé til að breyta einhverju í eigin fari til að auka öryggi sitt og sinna. Flestir sem látast af slysförum látast í umferðarslysum. Ef litið er rúmlega 40 ár aftur í tímann þá hafa tæplega 1.000 einstaklingar látist í umferðarslysum á þeim tíma.
Of mikill hraði, ölvun, skortur á athygli og þreyta eru þættir sem tengjast mjög orsökum umferðarslysa, þættir sem allir eru í höndum ökumanns. Bílbeltaleysi eykur síðan líkur á alvarlegum áverkum ef slys verður. Á árunum 2000 til 2010 er talið að 49 einstaklingar hefðu lifað slysið af hefðu þeir notað bílbelti. Þrátt fyrir það ekur um tíundi hver ökumaður á höfuðborgarsvæðinu án bílbeltis.
Staldraðu við
- láttu vita af ferðum þínum
- vertu viss um að bíllinn sé í lagi og dekkin góð
- festu niður farangur
- tryggðu góða sýn út úr bílnum
- tryggðu öryggi eftirvagns ef hann er með í för
- tryggðu að allir í bílnum noti bílbelti
- virtu hámarkshraða og aktu miðað við aðstæður
- hafðu nægt bil á milli bíla
- taktu ekki framúr nema aðstæður séu öruggar
- aktu ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna
Á heimasíðu VÍS http://vis.is/einstaklingar/forvarnir/umferd/ er að finna mikinn fróðleik sem snýr að umferðaröryggi sem vert er að kynna sér með það að markmiði að auka öryggið.
Með ósk um örugga og farsæla ferðahelgi
starfsfólk VÍS