VÍS og HDSÍ í samstarf

Vátryggingafélag Íslands hf., VÍS, og Handknattleiksdómarasamband Íslands, HDSÍ, hafa gert með sér samstarfssamning fyrir handknattleikstímabilið 2009-2010. VÍS verður helsti styrktaraðili HDSÍ og munu dómarar bera þeirra merki á dómaratreyjum í leikjum á vegum HSÍ.

Á myndinni má sjá Maríu Hrund Marinósdóttur, markaðsstjóra VÍS, Önnu Halldórsdóttur, markaðsfulltrúa á markaðsdeild VÍS, og Arnar Sigurjónsson, varaformann HDSÍ, við undirritun samningsins.
Var efnið hjálplegt?