Tryggur bílahjálp

Tryggur bílahjálp aðstoðar ökumenn sem lenda í vandræðum. Þjónustan er þríþætt. Fyrst ber að nefna símaaðstoð þar sem starfsmenn Tryggs reyna eftir fremsta megni að leysa málið í símanum. Ef það tekst ekki, en talið er að sérhæfðir þjónustuaðilar geti lagfært ökutækið, mæta þeir á staðinn. Ýmist er þjónustubifreið eða bílflutningabíll sendur á staðinn, allt eftir eðli málsins.
Ef ekki er hægt að lagfæra vandamálið á staðnum er ökutækið flutt á næsta verkstæði.
Þjónustan er í boði allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Viðskiptavinir VÍS sem eru með F plús eða heimilistryggingu fá 70% afslátt ef um er að ræða aðstoð á staðnum, en 50% afslátt ef ökutæki er flutt á verkstæði. Sérkjörin gilda þó aðeins fyrir einkaökutæki sem eru undir 5 tonn að leyfðri heildarþyngd og ekki lengri en 7 metrar.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Tryggs, www.tryggurbilahjalp.is eða í síma 800-9000.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
