Hleð spilara!

Hvað er CABAS?

CABAS er tjónamatskerfi fyrir verkstæði til að meta viðgerðarkostnað vegna skemmda á ökutæki. Með tilkomu CABAS þurfa eigendur ökutækja ekki lengur að fara á næstu skoðunarstöð VÍS til að láta meta tjónið heldur geta þeir snúið sér beint til næsta CABAS verkstæðis sem VÍS hefur samið við um kaup á þjónustu.

Sjá lista yfir Þjónustuaðilar, sem Vátryggingafélag Íslands hf. hefur samið við, bæði í nafnaröð og póstnúmeraröð.

Ökutæki ekið að næsta CABAS verkstæði

Þegar bifreiðaeigandi lendir í umferðaróhappi og getur ekið ökutæki sínu af vettvangi snýr hann sér beint til næsta CABAS verkstæði með ökutæki sitt til skoðunar og mats. Ef ökutækið er viðgerðarhæft gerir verkstæðið viðgerðaráætlun í CABAS tjónamatskerfi til að sjá hversu mikill viðgerðarkostnaðurinn er.

Ef VÍS á að greiða viðgerðarkostnaðinn sendir verkstæðið viðgerðaráætlun ásamt myndum í tölvupósti til félagsins þar sem skoðunarmenn yfirfara hana og samþykkja ef allar forsendur eru í lagi. Hér að neðan má sjá hverjar þær forsendur eru.

Ökutæki ekki í ökuhæfu ástandi og er í geymslu björgunaraðila

Bifreiðaeigandi hefur samband við næstu þjónustuskrifstofu VÍS til að tilkynna umferðaróhapp og fá nánari upplýsingar um næstu skref.

Forsendur

  • Tjónstilkynning og/eða lögregluskýrsla verður að berast félaginu svo hægt sé að ákveða bótaskyldu.
  • Viðgerð má ekki hefjast á ökutækinu fyrr en bótaskylda liggur fyrir. VÍS greiðir því aðeins viðgerðina að tjónið sé bótaskylt af hálfu VÍS.
  • Viðgerð ætti ekki að hefjast fyrr en verkstæði hefur útvegað alla varahluti.
  • Viðkomandi verkstæði verður að vera með samkomulag við VÍS um þjónustugjöld og verkferli.

Minnispunktar

  • Fyllið tjónstilkynningu vel og vandlega út. Athugið til dæmis að undirskrift á að vera bæði framan og aftan á tilkynningunni.
  • Gott er að hafa í huga verðmæti ökutækis svo hægt sé að flýta uppgjöri tjónsins.
  • Hægt er að velja á milli þess að fá bílaleigubíl eða afnotamissi greiddan í bótaskyldu tjóni.
  • Verkstæði getur útvegað bílaleigubíl fyrir þá sem eiga rétt á þeim.