Hleð spilara!
Greiðsluleiðir
Þegar skipuleggja skal fjármál heimila og fyrirtækja eru iðgjöld trygginga einn þáttur í þeim rekstri. Hjá VÍS kappkostum við að bjóða upp á allar þær greiðsluleiðir sem viðskiptavinir okkar óska eftir.
Boðgreiðslur
Gerður er boðgreiðslusamningur sem byggist á því að öll tryggingaiðgjöld þín fari inn á hann svo og allar endurgreiðslur frá okkur til þín. Hægt er að dreifa iðgjöldunum í allt að tólf mánuði.Greitt í heimabanka, banka eða sparisjóði.
Þú færð sendan greiðsluseðil og kröfu í heimabanka. Seðilgjald er rukkað af greiðsluseðlinum í samræmi við gjaldskrá VÍS. Athugaðu að þú getur afpantað greiðsluseðla og losnað þannig við seðilgjaldið með því að hafa samband við þjónustufulltrúa VÍS. Hægt er að dreifa iðgjöldunum í allt að tólf mánuði.- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
