Meðferð trúnaðarupplýsinga
Við vinnslu persónuupplýsinga er gætt ákvæða laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. Starfsmenn sem fjalla um líf- og sjúkdómatryggingar eru bundnir trúnaði og þagnarskyldu um allt sem kemur fram í samskiptum vátryggingartaka/vátryggðs við félagið meðan þeir starfa hjá félaginu og eftir að þeir láta af störfum.
Þér er heimilt að afturkalla samþykki þitt til vinnslu á þeim upplýsingum sem þú veitir og skal það gert skriflega.
