Hvers vegna átt þú að líf- og sjúkdómatryggja þig

Ungir einstaklingar leggja grunn að framtíð sinni – mennta sig, stofna fjölskyldu og koma þaki yfir höfuðið. Á sama tíma aukast skuldbindingarnar og standa þarf skil af afborgunum lána. Það er því mikilvægt að búa vel um hnútana gagnvart sjálfum sér og fjölskyldunni.

Með líf- og sjúkdómatryggingu hjá VÍS býrðu þér og þínum nánustu öruggari og áhyggjulausari framtíð.

Líftrygging

Bætur líftryggingar geta aldrei komið í veg fyrir það áfall sem fjölskylda verður fyrir við fráfall ástvinar en góð líftrygging getur vissulega stuðlað að því að eftirlifendur geti skipulagt framtíð sína í ljósi breyttra aðstæðna án þess að hafa þungar áhyggjur af fjármálum.

Líftrygging er greidd út í einu lagi og þú ákveður við tryggingatökuna hverjir fá bæturnar greiddar við fráfall þitt. Ekki skiptir máli hvort orsökin er slys eða sjúkdómur.

Sjúkdómatrygging

Hefur þú velt því fyrir þér hvað gerist ef þú veikist alvarlega og verður frá vinnu í einhvern tíma eða til frambúðar? Heilsan er meðal stærstu óvissuþátta í lífinu og alvarleg veikindi gera sjaldnast boð á undan sér.

Sjúkdómatryggingu er ætlað að veita þér og fjölskyldu þinni fjárhagslegan stuðning ef þú greinist með einhvern þeirra alvarlegu sjúkdóma sem tryggingin nær til eða ferð í aðgerð vegna þeirra. Komi til veikinda færð þú tryggingarfjárhæðina greidda út í einu lagi.