Hleð spilara!
Rekstrarstöðvunartrygging vegna slysa og/eða sjúkdóma
Læknum, tannlæknum og einyrkjum sem byggja rekstarafkomu á eigin vinnuframlagi er ráðlagt að taka rekstrarstöðvunartryggingu vegna slysa og/eða sjúkdóma.
Tryggingin greiðir bætur ef stöðvun verður á rekstri vátryggðs vegna sjúkdóms og/eða slyss sem hann lendir í og verður með öllu óvinnufær og hefur í för með sér algjöra fjarvist hans af vinnustað á bótatímabilinu.
Félagið greiðir:
- Bætur ef stöðvun verður á rekstri vátryggðs vegna sjúkdóms og/eða slyss er hann verður fyrir. Slysið eða sjúkdómurinn verður að valda því að vátryggður verði með öllu óvinnufær og hafa í för með sér algera fjarvist hans af vinnustað á bótatímabilinu.
- Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.
- Það er skilyrði bótaskyldu úr vátryggingu þessari að fyrir hendi sé slysatrygging eða sjúkra- og slysatrygging hjá félaginu sem greiðir bætur vegna þess slyss eða sjúkdóms sem olli rekstrarstöðvuninni.
Félagið greiðir ekki bætur:
- Ef vátryggður verður óvinnufær að hluta, hlýtur varanlega örorku eða andast.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
