Hleð spilara!

Innlendur sjúkrakostnaður

Atvinnurekendur sem ráða erlenda starfsmenn þurfa að tryggja þá tímabundið gegn innlendum sjúkrakostnaði.


Sjúkrakostnaðartrygging innanlands er fyrir einstaklinga sem ætla að flytja lögheimili sitt til Íslands, eða koma og vinna tímabundið og eru þá með dvalarleyfi samþykkt af Útlendingastofnun. Vátryggingin er skammtímatrygging og gildir í sex mánuði frá komu til landsins.

Beiðni er forsenda tryggingatöku

Vátryggingin bætir eftirfarandi sjúkrakostnað sem fellur til á Íslandi:
• Kostnað við sjúkrahúsvist að ráði læknis, sbr. 34. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993, þó ekki á heilsuhælum nema vegna afleiðinga sjúkdóms sem fyrst sýndi einkenni eftir að vátryggingin tók gildi og slyss sem varð á vátryggingartímabilinu.
• Kostnað við almenna læknishjálp utan sjúkrahúsa, sbr. a. lið 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993.
• Kostnað við nauðsynlegar rannsóknir og meðferð hjá sérfræðingum eða stofnunum, sbr. b. lið 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993.
• Kostnað við lyf sem vátryggðum er lífsnauðsynlegt að nota að staðaldri auk annars nauðsynlegs lyfjakostnaðar, sbr. c. lið 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993.
• Kostnað vegna óhjákvæmilegs ferðakostnaðar læknis til vátryggðs og flutningskostnaðar vátryggðs í sjúkrahús, sbr. g. og h. lið 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993.
• Kostnað vegna hjúkrunar í heimahúsum vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma eða slysa sem eru innan bótasviðs vátryggingarinnar enda komi heimalega í stað sjúkrahúsvistar, sbr. j. lið 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993.

Vátryggingin bætir ekki kostnað:
• Sem er greiddur er samkvæmt lögum um almannatryggingar eða reglugerðum settum samkvæmt þeim.
• Vegna slyss sem orðið hefur áður en vátryggingin tók gildi, nema að félaginu hafi verið kunnugt um það.
• Vegna sjúkdóms sem fyrst hafði sýnt einkenni áður en vátryggingin tók gildi, nema að félaginu hafi verið kunnugt um það.
• Vegna tannlækninga eða lýtalækninga, nema um sé að ræða nauðsynlegar bráðaaðgerðir vegna bótaskylds slyss eða sjúkdóms.
• Vegna dvalar á fæðingarstofnun.
• Sem verður vegna meðgöngu, fæðingarhjálpar eða sjúkdóma sem rekja má til meðgöngu eða fósturláts.
• Vegna sjúkdóms sem rót á að rekja til neyslu áfengis, fíkniefna eða annarra nautnalyfja.
• Vegna ryskinga eða þátttöku í refsiverðum verknaði.
• Í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini.
• Við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini.
• Vegna slyss af völdum hryðjuverka, vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.