Hleð spilara!
Hálf-kaskótrygging dráttarvéla til landbúnaðarstarfa
Tryggingin er ætluð eigendum dráttarvéla sem notaðar eru til landbúnaðarstarfa og bætir hún tjón á vélunum.
Tryggingin er valfrjáls og bætir tjón á dráttarvélum m.a. vegna veltu, hraps, bruna eða þjófnaðar. Þessi trygging er sniðin fyrir dráttarvélar til landbúnaðarstarfa og gerð í samráði við Bændasamtökin sem liður í samningi VÍS við þau.
Vátryggingin bætir tjón vegna:
- Veltu og hraps. Vátryggingin nær einnig til landbúnaðartækja í eigu vátryggingartaka sem eru fasttengd við dráttarvélina, þegar hún veltur eða hrapar.
- Eldsvoða, eldingar eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Auk skemmda á dráttarvélinni nær vátryggingin til skemmda sem samtímis verða á varahlutum og þeim fylgihlutum dráttarvélarinnar sem teljast mega tilheyra eðlilegum útbúnaði hennar þegar tjónið varð, enda séu hlutir þessir þá í dráttarvélinni. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Þjófnaðar eða ef tilraun er gerð til þjófnaðar á henni.
- Brot á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum dráttarvélarinnar, þó ekki við úrtöku og ísetningu. Það telst ekki rúðubrot þótt flísist eða kvarnist úr rúðu eða hún rispast.
Vátryggingin bætir ekki:
- Skemmdir vegna veltu eða hraps séu þær afleiðing áreksturs eða áaksturs.
- Skemmdir er stafa af hvers konar náttúruhamförum, sbr. skilmála. Þó bætast skemmdir er verða ef dráttarvélin fýkur út af akbraut og veltur.
- Skemmdir vegna veltu eða hraps og aðeins varða hjól og hjólbarða.
- Skemmdir af eldsvoða af völdum áreksturs eða áaksturs.
- Skemmdir á hreyfli vegna sprenginga í strokkum.
- Þjófnað á einstökum hlutum dráttarvélarinnar.
- Skemmdir sem verða á dráttarvélinni vegna þátttöku í aksturskeppni eða æfingu fyrir slíka keppni.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
