Hleð spilara!
Brunatrygging
Brunatrygging er fyrir þá eigendur ökutækja sem ekki telja þörf á kaskótryggingu.
Tryggingin er valfrjáls og bætir hún tjón á ökutækinu vegna eldsvoða. Auk skemmda á ökutækinu nær tryggingin til skemmda sem samtímis verða á varahlutum og þeim fylgihlutum sem tilheyra eðlilegum útbúnaði þess þegar tjónið varð, enda séu þessir hlutir þá í ökutækinu. Brunatrygging ökutækja er einkum hugsuð fyrir ökutæki þar sem eigandinn telur ekki lengur ástæðu til að hafa kaskótryggingu.
Vátryggingin bætir tjón:
- Á ökutækinu vegna eldsvoða, eldingar eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Auk skemmda á ökutækinu nær vátryggingin til skemmda sem samtímis verða á varahlutum og þeim fylgihlutum ökutækisins sem teljast mega tilheyra eðlilegum útbúnaði þess þegar tjónið varð, enda séu hlutir þessir þá í ökutækinu. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Á hreyfli vegna sprenginga í strokkum.
- Á hvers konar aukaútbúnaði ökutækisins, t.d. tengivögnum, farsímum, GPS-tækjum, talstöðvum, vörulyftum og krönum vörubifreiða, lausum toppgrindum og farangurskössum, nema um annað sé samið.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
