Hleð spilara!
Verktrygging
Verktrygging er sniðin fyrir verktaka og greiðir verkkaupa bætur verði vanefndir á verksamningi.
Tryggingin bætir tjón sem verkkaupi verður fyrir fari svo að tryggingatakinn (verktaki) efni ekki skyldur sínar samkvæmt samningi þeirra á milli. Verktakinn leggur fram ábyrgð til verkkaupa fyrir ákveðinni prósentutölu af samningsfjárhæð sem tryggingu gegn vanefndum á verksamningi eða göllum sem upp kunna að koma.
Nokkur skilyrði þurfa að uppfylla áður en verktrygging er sett í gildi. Útfyllt beiðni þarf að fylgja umsókn um tryggingu sem og afrit af ársreikningi. Bakábyrgðir þurfa einnig að liggja til grundvallar ásamt afriti af verksamningi og útboðsgögnum.
Félagið ábyrgist greiðslu á tjóni sem verkkaupi verður fyrir efni vátryggingartaki ekki skyldur sínar samkvæmt samningi vátryggingartaka og verkkaupa.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
