Hleð spilara!

Lögboðin vátrygging vegna neytendalána

Bankastofnunum sem veita lán til neytenda er skylt samkvæmt íslenskum lögum að hafa í gildi vátryggingu vegna neytendalána.


Tryggingin bætir fjárkröfu sem neytandi eignast á hendur tryggingataka vegna vanefnda hans á samningi um viðskipti.

Vátryggingin bætir:

  • Fjárkröfu, sem neytandi eignast á hendur vátryggingartaka vegna vanefnda hans á samningi um viðskipti, sem lög nr. 121/1994 um neytendalán taka til.
  • Vátryggingin gildir þó aðeins í þeim tilvikum, að lánveitandi framselji grandlausum þriðja manni viðskiptabréf, sem neytandi hefur látið af hendi sem greiðslu til framseljanda, sbr 3. mgr. 17. gr. og 18. gr. laganna.
  • Til greiðslu bóta kemur eingöngu, hafi fullnaðardómur eða réttarsátt gengið um vanefnd og að ljóst sé að lánveitandi geti ekki efnt skyldu sína samkvæmt dóminum eða sáttinni.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón vegna vanefndaábyrgðar, sem er víðtækari en eftir íslenskum reglum.
  • Sektir og önnur viðurlög sem falla á vátryggðan.