Hleð spilara!

Rekstrarstöðvunartrygging

Flestum fyrirtækjum í verslun, þjónustu eða framleiðsluiðnaði er mikilvægt að hafa í gildi rekstrarstöðvunartryggingu.


Tryggingin bætir rekstrartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar sem leiðir til samdráttar í vörusölu eða þjónustu ef rekja má orsökina til bótaskylds tjóns á tryggðum búnaði af völdum bruna, vatns eða innbrots.

Við ákvörðun vátryggingarfjárhæðar er stuðst við upplýsingar úr rekstrarreikningi viðkomandi fyrirtækis fyrir liðið ár og/eða áætlun fyrir yfirstandandi ár.

Vátryggingin bætir:

  • Rekstrartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar á vátryggingartímabilinu og leiðir til samdráttar í sölu vöru eða þjónustu vátryggðs af völdum:
    • Bruna.
    • Vatns.
    • Innbrotsþjófnaðar.
Vátryggingin getur einnig tekið til óhjákvæmilegs aukakostnaðar sem vátryggður verður fyrir á bótatímanum og beinlínis verður rakinn til þess að atvinnuhúsnæði vátryggðs verður ekki notað sökum bótaskylds tjóns á hinu vátryggða lausafé eða húsnæði sem lausaféð er geymt í. Aukakostnaðurinn nær eingöngu til sömu bótaliða og rekstrartapið tekur til.

Það er skilyrði bótaskyldu samkvæmt skilmála að fyrir hendi sé hjá félaginu vátrygging á lausafé sem bætir það tjón sem olli rekstrarstöðvuninni.

Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram á vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Aukið rekstrartap sem hlýst af verkbanni, verkfalli, vélarbilun, rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
  • Aukið rekstrartap sem hlýst af almennum samdrætti í viðkomandi starfsgrein, eða vegna breytinga á markaðsstöðu vátryggðs eða sökum fjármagnsskorts hans.