Hleð spilara!
Rekstrarstöðvunartrygging vegna véla
Er mikilvæg flestum framleiðslufyrirtækjum og bætir hún rekstrartap vegna rekstrarstöðvunar af völdum tjóna á vélum.
Tryggingin bætir rekstrartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar sem leiðir til samdráttar í vörusölu eða þjónustu ef rekja má orsökina til bótaskylds tjóns á tryggðri vél af völdum skyndilegra eða ófyrirsjáanlegra óhappa. Forsenda tryggingartöku er að vélin sé vélatryggð hjá VÍS.
Vátryggingin bætir:
- Rekstrartap sem vátryggður verður fyrir við stöðvun rekstrar á vátryggingartímabilinu vegna bilunar þeirrar vélar sem sem tilgreind er á vátryggingarskírteininu eða endurnýjunarkvittun og leiðir til samdráttar í sölu, vöru eða þjónustu vátryggðs.
- Það er skilyrði bótaskyldu skv. skilmála að fyrir hendi sé vélatrygging hjá félaginu sem bæti það tjón sem olli rekstrarstöðvuninni.
Vátryggingin bætir ekki:
- Aukið rekstrartap sem hlýst af verkbanni, verkfalli, rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
- Aukið rekstrartap sem hlýst af almennum samdrætti í viðkomandi starfsgrein, eða vegna breytinga á markaðsstöðu vátryggðs eða sökum fjármagnsskorts hans.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
