Hleð spilara!
Aukakostnaðartrygging
Aukakostnaðartrygging er vernd gegn tilfallandi aukakostnaði vegna bótaskylds tjóns á lausafé atvinnurekanda sem verður til þess að rekstur stöðvast.
Tryggingin bætir allan óhjákvæmilegan aukakostnað, s.s. húsaleigu og flutningskostnað sem vátryggður verður fyrir vegna tjóna á lausafé eða því húsnæði sem hið tryggða lausafé er geymt í af völdum bruna, vatns eða innbrotsþjófnaðar.
Yfirleitt er aukakostnaðartrygging tekin sem viðbót við rekstrarstöðvunartryggingu en hentar þó í sumum tilvikum ein og sér.
Vátryggingin bætir:
- Óhjákvæmilegan aukakostnað, s.s. húsaleigu og flutningskostnað sem vátryggður verður fyrir á bótatímanum og beinlínis verður rakinn til þess að atvinnuhúsnæði vátryggðs verður ekki notað sökum bótaskylds tjóns á hinu vátryggða lausafé eða húsnæði sem lausaféð er geymt í vegna:
- Bruna.
- Vatns.
- Innbrotsþjófnaðar.
- Það er skilyrði bótaskyldu samkvæmt skilmála að fyrir hendi sé hjá félaginu vátrygging á lausafé sem bætir það tjón sem leiddi til aukakostnaðar.
- Bótaþættir sem vátryggingin tekur til koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
Vátryggingin bætir ekki:
- Aukinn kostnað sem vátryggður verður fyrir eftir lok bótatímans.
- Aukinn kostnað vegna dráttar á því að rekstur hefjist aftur eftir tjón vegna óeðlilegra tafa á viðgerð, vegna stækkunar á húsnæði eða annarra breytinga á fyrra húsnæði.
- Aukinn kostnað sem hlýst af verkbanni, verkfalli, vélarbilun, vegna fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
- Aukinn kostnað sem hlýst af almennum samdrætti í viðkomandi starfsgrein, eða tjón vegna breytinga á markaðsstöðu vátryggðs eða sökum fjármagnsskorts hans.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
