Hleð spilara!

Ylræktartrygging

Fyrirtæki í gróðurhúsarækt ættu að huga að því að vera með ylræktartryggingu sem tekur til tjóna á ræktun þeirra.


Tryggingin bætir tjón á ræktun í fullgerðum gróðurhúsum af viðurkenndri gerð sem verða m.a. af völdum bruna, óveðri, vatni eða innbroti.

Eldsvoði, elding og sprenging

Vátryggingin bætir tjón á ræktun af völdum:

  • Eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
  • Eldingar.
  • Sprengingar.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón sem verður vegna vinnu með sprengiefni við verklegar framkvæmdir.

Vatn, gufa og olía

Vátryggingin bætir tjón á ræktun af völdum:

  • Vatns, gufu og olíu sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum gróðurhússins og á upptök innan veggja hússins.
  • Vatns sem flæðir úr tækjum vegna mistaka eða bilana.

Vátryggingin bætir ekki tjón á ræktun af völdum:

  • Utanaðkomandi vatns, svo sem grunnvatns, úrkomu, flóða eða vatns frá þakrennum eða frárennslis-leiðslum þeirra.
  • Vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslis-leiðslum eða ef skolpleiðslur geta skyndilega ekki flutt allt það vatn er að berst, þó með þeirri undantekningu ef leiðsla stíflast eða springur innanhúss.

Innbrot

Vátrygging bætir tjón á ræktun af völdum:

  • Innbrots.

Óveður

  • Vátryggingin bætir tjón á ræktun af völdum óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Til óveðurstjóna á ræktun teljast eingöngu þau tjón sem verða þegar vindur hefur rofið þak, glugga eða aðra hluta gróðurhússins. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingaratburðurinn átti sér stað.

Breyting á hitastigi

Vátryggingin bætir tjón á ræktun af völdum breytinga á hitastigi vegna:

  • Bilunar í tæknibúnaði, rafmagnsbilana, bilana í hitakerfum og vatnsleiðslum.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

  • Sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta, af áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.

Snjóþungi

Vátryggingin bætir tjón á ræktun:

  • Af völdum skyndilegs snjóþunga sem sligað hefur þak eða veggi gróðurhússins.

Vátryggingin bætir ekki tjón:

  • Sem er afleiðing byggingargalla.