Landbúnaðartrygging
Allir bændur ættu að hafa landbúnaðartryggingu sem veitir þeim víðtæka vernd vegna búreksturs.
Tryggingin er fyrir bændur sem stunda hefðbundinn búskap og bætir tjón á búfé, heyi, kjarnfóðri og tilbúnum áburði. Einnig eru vélar, áhöld og tæki tryggð. Landbúnaðartrygging tekur þar að auki til óveðurs og inniheldur ábyrgðartryggingu.
Forðagæsluskýrsla er forsenda vátryggingafjárhæðar á búfé og fóðri og þarf skriflegt umboð frá bændum til að hægt sé að kalla eftir þeim upplýsingum hjá Bændasamtökum Íslands.
Lausafjártrygging
Eldsvoði og ofhitnun á fóðri
Vátryggingin bætir tjón á hinu vátryggða vegna:
- Eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Ofhitnunar á fóðri (kolun). Slíkt tjón greiðist sem um eldsvoða sé að ræða þótt eldur verði ekki laus.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Á munum sem verða fyrir eldi eða hita við upphitun, suðu, þurrkun, reykingu eða þess háttar og brenna af þeirri ástæðu eða skemmast.
- Á raftækjum eða rafeindatækjum er orsakast af skammhlaupi eða öðru rafmagnsfyrirbrigði eingöngu, spani frá rafmögnuðu óveðri, nema af því leiði eldsvoða eða sé afleiðing eldsvoða.
Óveður
Vátryggingin bætir tjón á hinu vátryggða:
- Af völdum óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Til óveðurstjóna teljast eingöngu þau tjón sem verða þegar vindur hefur rofið þak, glugga eða aðra hluta þess húss sem hið vátryggða er geymt í. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingaratburðurinn átti sér stað.
Vátryggingin bætir ekki:
- Óveðurstjón á hinu vátryggða sem er úti.
Raflost
- Vátryggingin bætir tjón á hinu vátryggða búfé verði það fyrir raflosti og drepst.
Umferðaróhapp
- Vátryggingin bætir tjón á hinu vátryggða búfé drepist það af völdum umferðaróhapps og tjónið fæst ekki bætt af tjónvaldi eða úr ábyrgðartryggingu viðkomandi ökutækis.
Ábyrgðartrygging bænda
Vátryggingin bætir:
- Beint líkams- eða munatjón þriðja manns vegna skaðabótaábyrgðar vátryggðs sem fellur á hann samkvæmt íslenskum lögum vegna starfsemi þeirrar sem getið er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun. Með munum er átt við fasteign og lausafé, þ.m.t. dýr. Vátryggingin bætir tjón að því leyti sem tjónþoli á ekki að bera tjónið sjálfur vegna meðsakar eða meðábyrgðar.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón innan samninga, þ.e. tjón sem vátryggður ber ábyrgð á vegna vanefnda á samningi.
- Tjón vegna skemmda á munum eða glötunar muna sem:
- Vátryggður á einn eða með öðrum.
- Vátryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal muna sem vátryggður hefur tekið í heimildarleysi.
- Vátryggður tekur að sér að gera við, hreinsa, setja upp eða vinna við með öðrum hætti, ef tjónið verður af verkinu eða við verkið.
- Tjón sem leiðir af skaðabótaábyrgð er fellur á vátryggðan sem eiganda eða notanda skráningarskylds ökutækis, loftfars, skips eða báts.
- Tjón á munum stafi það af eldsvoða, vatni vegna slökkvistarfs, reyk, sóti eða sprengingu.
- Sektir, málskostnað eða önnur útgjöld í sambandi við refsimál.
- Tjón sem verður sökum mengunar lofts, jarðar, gróðurs, sjávar eða vatns. Félagið bætir þó þess háttar tjón ef það verður rakið til eins ákveðins atburðar.
- Tjón sem rekja má til asbests eða efnis sem inniheldur asbest að einhverju leyti.
- Endurkröfu frá almannatryggingum.
- Munatjón sem stafar af sprengingum, uppgreftri, aur- eða skriðuhlaupum, jarðsigi eða af því að stífla eða flóðgarður brestur.
- Tjón vegna byggingarframkvæmda á fasteign sem vátryggður er eigandi að.
- Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta af:
- Áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa tveggja.
- Umsjón með eða ráðgjöf um áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra.
- Eftirliti, viðurkenningu, ákvörðun, staðfestingu eða áritun um aðstæður þar sem áhrif tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þeirra skipta máli (þ.m.t. en þó ekki takmarkað við störf framkvæmdastjóra, stjórnarmanna og endur-skoðenda að verkefnum sínum).
Undanþága þessi á við um allar tímaskráningar.
Með “tímaskráningu” er átt við tilgreiningu tíma sem byggist á almanakskerfi þegar tilgreiningin verkar sem upplýsingar, kóti, merki eða með hvers konar öðrum hætti í búnaði, kerfi eða samblandi þessa hvoru tveggja.
Með “búnaði” er átt við hvers konar vélar, tæki, vörur og aðra áþreifanlega hluti eða safn hluta, hvort sem um er að ræða fasteign eða lausafé, þ.m.t. en þó ekki takmarkað við vélbúnað tölva, hugbúnað eða samþætt rafeindakerfi (þ.m.t. örgjörvar og kísilflögur).
Með “kerfi” er átt við hvers konar upplýsingar, fyrirmæli eða safn þeirra og hvers konar miðla fyrir upplýsingar og fyrirmæli í tölvutæku formi, á pappír eða í formi geisla, bylgna, eðlisfræðilegra áhrifa, efnaferla eða á öðru óáþreifanlegu eða áþreifanlegu formi.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
