Hleð spilara!
Gripatrygging
Gripatrygging er fyrir eigendur hrúta og greiðir hún bætur vegna dauða á gripnum.
Tryggingin bætir hrúta vegna dauða af völdum slysa, veikinda eða ýmissa sjúkdóma.
Vátryggingin bætir:
- Gripinn vegna dauða af völdum:
- Slyss, þ.m.t. eldsvoða.
- Veikinda eða sjúkdóma.
- Einnig tjón ef hesti er stolið eða hann týnist og finnst ekki innan 120 daga frá því að tilkynning um það barst til félagsins.
Vátryggingin bætir ekki:
- Slys, veikindi eða sjúkdóma sem hafa í för með sér að vátryggður gripur verður eigi hæfur til sömu notkunar og áður, en lifir þó.
- Tjón vegna aflífunar vátryggðs grips samkvæmt lögum um smitnæma sjúkdóma eða samkvæmt fyrirmælum opinberra aðila.
- Vátryggðan grip ef hann er aflífaður án samráðs við dýralækni, nema tafarlausrar aflífunar sé þörf.
- Útlagðan kostnað vegna læknisaðstoðar, lyfjakaupa eða annan aukakostnað eiganda vegna slyss, veikinda eða sjúkdóms gripsins.
- Tjón sem verður í flutningi eða sem afleiðing af flutningi á vátryggðum grip með skipum eða flugvélum innanlands, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Tjón sem verður þegar gripur er lánaður eða leigður út eða tjón sem er afleiðing af láni eða útleigu, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
